Latur (sker)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júlí 2005 kl. 10:24 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júlí 2005 kl. 10:24 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Latur

Latur er drangur sem stendur norðan við Miðklett á Heimaey. Kletturinn fékk nafn sitt af því að menn sem reru frá Landeyjum til Vestmannaeyja tóku sér oft hvíld við Lat áður en haldið var inn innsiglinguna, þar sem að oft er mjög straumhart á þeim þríhyrnda fleti sem afmarkast af Bjarnarey, Elliðaey og hafnarmynni Heimaeyjar.