Latur (sker)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. nóvember 2005 kl. 15:19 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. nóvember 2005 kl. 15:19 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Latur er drangur sem stendur norðan við Miðklett á Heimaey. Kletturinn fékk nafn sitt af því að menn sem reru frá Landeyjum til Vestmannaeyja tóku sér oft hvíld við Lat áður en haldið var inn innsiglinguna, þar sem oft er mjög straumhart á þeim þríhyrnda fleti sem afmarkast af Bjarnarey, Elliðaey og hafnarmynni Heimaeyjar.