„Landlyst“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
The content of the new revision is missing or corrupted.
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Landlyst1.jpg|thumb|left|250px|Landlyst þegar húsið stóð við Strandveg 43b.]]
Húsið Landlyst er eitt af elstu húsum í Eyjum. Húsið stóð við [[Strandvegur|Strandveg]] 43b fram til ársins 1992, er það var tekið niður og friðlýst.


[[Mynd:Landlyst.jpg|thumb|right|250px|Landlyst á Skansinum.]]
Landlyst var byggð árið 1848 og stendur núna í sinni upprunalegu mynd á Skanssvæðinu. Þar hefur verið komið upp læknaminjasafni.
Við húsið var fyrsta fæðingarheimili á Íslandi byggt árið 1847.
Húsið var byggt af [[Matthías Markússon|Matthíasi Markússyni]] snikkara og konu hans [[Sólveig Pálsdóttir|Sólveigu Pálsdóttur]] ljósmóður.
Sólveig var send til ljósmæðranáms í Kaupmannahöfn og við heimkomuna var byggt fæðingarheimili við Landlyst með styrk frá danska ríkinu. Þetta kom til vegna landlægs sjúkdóms sem nefndist [[ginklofi]] (stífkrampi) og lagðist hann sérstaklega á ungabörn. Ginklofinn var skæðari í Eyjum en annars staðar hér á landi og ungbarnadauði var mikill.
Sumarið 1847 kom danski læknirinn [[Peter Anton Schleisner]] til Eyja, sendur hingað af danska ríkinu til að takast á við þennan faraldur. Schleisner og Sólveig tóku upp samvinnu og tókst þeim að útrýma ginklofanum á ótrúlega skömmum tíma.
Landlyst var íbúðarhús til 1972 þegar Vestmannaeyjabær keypti húsið. Eftir þann tíma fór fram margs konar starfsemi í húsinu. Myndlistarskóli starfaði þar um tíma og ljósmyndaklúbbur fékk inni í húsinu. Gallerí var stofnað í Landlyst og sýningar haldnar þar.
[[Flokkur:Hús]]

Útgáfa síðunnar 16. ágúst 2006 kl. 11:10