„Landlyst“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (setti inn mynd af Landlyst við Strandveg)
(bæti við)
Lína 4: Lína 4:
[[Mynd:Landlyst.jpg|thumb|right|250px|Landlyst á Skansinum.]]
[[Mynd:Landlyst.jpg|thumb|right|250px|Landlyst á Skansinum.]]
Landlyst var byggð árið 1848 og stendur núna í sinni upprunalegu mynd á Skanssvæðinu. Þar hefur verið komið upp læknaminjasafni.
Landlyst var byggð árið 1848 og stendur núna í sinni upprunalegu mynd á Skanssvæðinu. Þar hefur verið komið upp læknaminjasafni.
Við húsið var fyrsta fæðingarheimili á Íslandi byggt árið 1847.
Við húsið var fyrsta fæðingarheimili á Íslandi byggt árið 1847.  

Húsið var byggt af [[Matthías Markússon|Matthíasi Markússyni]] snikkara og konu hans [[Sólveig Pálsdóttir|Sólveigu Pálsdóttur]] ljósmóður.
Húsið var byggt af [[Matthías Markússon|Matthíasi Markússyni]] snikkara og konu hans [[Sólveig Pálsdóttir|Sólveigu Pálsdóttur]] ljósmóður.
Lína 10: Lína 10:

Sumarið 1847 kom danski læknirinn [[Peter Anton Schleisner]] til Eyja, sendur hingað af danska ríkinu til að takast á við þennan faraldur. Schleisner og Sólveig tóku upp samvinnu og tókst þeim að útrýma ginklofanum á ótrúlega skömmum tíma.

Landlyst var íbúðarhús til 1972 þegar Vestmannaeyjabær keypti húsið og eftir þann tíma fór fram margs konar starfsemi í húsinu.  Myndlistarskóli starfaði þar um tíma og ljósmyndaklúbbur fékk inni í húsinu.  Gallerí var stofnað í Landlyst og sýningar  haldnar þar.

[[Flokkur:Hús]]
[[Flokkur:Hús]]

Útgáfa síðunnar 12. júní 2006 kl. 14:37

Landlyst þegar húsið stóð við Strandveg 43b.

Húsið Landlyst er eitt af elstu húsum í Eyjum. Húsið stóð við Strandveg 43b fram til ársins 1992, er það var tekið niður og friðlýst.

Landlyst á Skansinum.

Landlyst var byggð árið 1848 og stendur núna í sinni upprunalegu mynd á Skanssvæðinu. Þar hefur verið komið upp læknaminjasafni. Við húsið var fyrsta fæðingarheimili á Íslandi byggt árið 1847.

Húsið var byggt af Matthíasi Markússyni snikkara og konu hans Sólveigu Pálsdóttur ljósmóður. Sólveig var send til ljósmæðranáms í Kaupmannahöfn og við heimkomuna var byggt fæðingarheimili við Landlyst með styrk frá danska ríkinu. Þetta kom til vegna landlægs sjúkdóms sem nefndist ginklofi (stífkrampi) og lagðist hann sérstaklega á ungabörn. Ginklofinn var skæðari í Eyjum en annars staðar hér á landi og ungbarnadauði var mikill.

Sumarið 1847 kom danski læknirinn Peter Anton Schleisner til Eyja, sendur hingað af danska ríkinu til að takast á við þennan faraldur. Schleisner og Sólveig tóku upp samvinnu og tókst þeim að útrýma ginklofanum á ótrúlega skömmum tíma.