Lárus Bjarnfreðsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Lárus Bjarnfreðsson.

Lárus Bjarnfreðsson frá Efri-Steinsmýri í Meðallandi, V-Skaft., málari, fæddist þar 18. maí 1920 og lést 23. desember 1975.
Foreldrar hans voru Bjarnfreður Jóhann Ingimundarson bóndi, f. 13. september 1889 í Gamlabæ í Meðallandi, d. 13. september 1964 í Reykjavík, og kona hans Ingibjörg Sigurbergsdóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1893 í Fjósakoti í Meðallandi, d. 20. júlí 1945.

Börn Ingibjargar og Bjarnfreðs:
1. Björn Gísli Bjarnfreðsson bóndi í Ormskoti í Fljótshlíð, f. 24. júlí 1913, d. 30. apríl 1980. Kona hans Arnheiður Sigurðardóttir.
2. Vilborg Bjarnfreðsdóttir húsfreyja á Svanavatni við Stokkseyri, sjúkraliði, f. 19. júní 1915, d. 30. maí 1995. Maður hennar Ásmundur Siggeirsson.
3. Sigurbergur Bjarnfreðsson sjómaður, verkamaður, f. 30. september 1916, d. 8. febrúar 2002.
4. Haraldur Bjarnfreðsson sjómaður, f. 23. desember 1917, fórst 29. janúar 1940.
5. Guðjón Bjarnfreðsson garðyrkjumaður, verkamaður, kvæðamaður í Reykjavík, f. 3. mars 1919, d. 28. janúar 2009.
6. Lárus Bjarnfreðsson málari, f. 18. maí 1920, d. 23. desember 1975. Kona hans Guðrún Benjamínsdóttir.
7. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir alþingismaður, f. 8. ágúst 1921, d. 26. apríl 1994. Fyrrum maður hennar Anton Júlíus Guðjónsson. Maður hennar Runólfur Guðsteinn Þorsteinsson.
8. Jóhanna Bjarnfreðsdóttir húsfreyja í Reykjavík, bókavörður, f. 27. desember 1922, d. 4. október 2010. Maður hennar Ingólfur Finnbjörnsson.
9. Ólöf Bjarnfreðsdóttir sjúklingur, f. 24. júlí 1924, d. 29. ágúst 2019.
10. Ingibjörg Bjarnfreðsdóttir húsfreyja, f. 16. ágúst 1925, d. 10. desember 1985. Maður hennar Guðmundur Óskar Guðmundsson.
11. Eygerður Bjarnfreðsdóttir húsfreyja í Reykjavík, starfsstúlka, f. 4. janúar 1927, d. 4. apríl 1991.
12. Ármann Bjarnfreðsson bóndi, verkstjóri, fiskimatsmaður í Eyjum, f. 30. mars 1928, d. 9. júní 1988. Kona hans Kristín Óskarsdóttir.
13. Aðalsteinn Bjarnfreðsson sjómaður, verslunarmaður, f. 9. júní 1929, d. 9. apríl 2005. Kona hans Jóhanna Bára Sigurðardóttir.
14. Steindór Bjarnfreðsson sjómaður, f. 26. júní 1930, d. 28. september 2014. Kona hans Oddbjörg Sigurðardóttir.
15. Valdimar Bjarnfreðsson sjómaður, verkamaður, myndlistamaður, f. 16. febrúar 1931, d. 4. maí 2018.
16. Magnús Bjarnfreðsson blaðamaður, útvarpsþulur, f. 9. febrúar 1934, d. 30. ágúst 2012. Kona hans Guðrún Árnadóttir.
17. Sveinn Andrés Bjarnfreðsson, f. 27. ágúst 1935, d. 17. janúar 1941.
18. Ólafur Bjarnfreðsson verkamaður, f. 28. desember 1936, d. 23. október 2019. Kona hans Pisamai Phaengsrisarn.
19. Vilmundur Siggeir Bjarnfreðsson verkamaður í Reykjavík, f. 3. september 1939, d. 21. nóvember 1964.
20. Þóranna Halla Bjarnfreðsdóttir húsfreyja, þerna, f. 7. september 1942, d. 1. febrúar 1982. Maður hennar Ásgeir Hraundal.

Lárus lærði málaraiðn hjá Jóni Björnssyni í Reykjavík, lauk prófi í Iðnskólanum í Reykjavík og sveinsprófi 1952.
Hann var með foreldrum sínum til 1929, var tökubarn og síðan vinnumaður á Syðri-Fljótum í Meðallandi 1929-1938, var hjá foreldrum sínum 1939-1942.
Hann starfaði í Eyjum 1943-1948, bjó fyrst á Brekastíg 31, síðan í Brautarholti við Landagötu 3. Hann fór til Reykjavíkur og vann við iðn sína.
Lárus var í stjórn Málaranemafélagsins og Iðnnemasambandi Íslands, var ritari í Málarasveinafélagi Reykjavíkur á árunum 1952-1971, varaformaður 1955 og 1970, formaður 1957-1963, sat í trúnaðarmannaráði 1953-1974 og sat í yýmsum nefndum. Hann var fulltrúi á þingum ASÍ 1962 og 1964. Hann sat í stjórn SSB 1952-1953 og fulltrúi á þingum þess 1954-1956 og þingum SBM 1968-1972.
Þau Guðrún giftu sig 1965, eignuðust ekki börn, en fóstruðu systurson Lárusar.
Lárus lést 1975 og Guðrún 2007.

I. Kona Lárusar, (22. maí 1965), var Guðrún Benjamínsdóttir verslunarkona, símavörður og verkakona, f. 29. júní 1925 á Stóra-Knarrarnesi á Vatnsleysuströnd, d. 2. maí 2007. Foreldrar hennar voru Benjamín Halldórsson, f. 26. febrúar 1882, d. 31. október 1962 og kona hans Þuríður Ingibjörg Hallgrímsdóttir, f. 13. ágúst 1884, d. 19. mars 1957, en fóturforeldrar hennar voru móðurbróðir hennar Egill Hallgrímsson, f. 14. febrúar 1890, d. 13. desember 1981 og kona hans Elín Pálsdóttir, f. 11. janúar 1902, d. 17. júní 1993.
Fósturbarn þeirra:
1. Bjarnfreður Heiðar Ólafsson lögfræðingur, f. 17. nóvember 1967, sonur Þórönnu Höllu systur Lárusar. Kona hans Hulda Gísladóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Íslenskir málarar - Saga og málaratal. Kristján Guðlaugsson. Málarameistarafélag Reykjavíkur 1982.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.