Kumbaldi

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júlí 2005 kl. 09:43 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júlí 2005 kl. 09:43 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Kumbaldi stóð við Strandveg 4. Það var timburhús austan við Hraðfrystistöðina. Áfast Kumbalda að norðan var fiskaðgerðarhús með hallandi þaki.

Húsið var fiskgeymsluhús fyrir blautfisk yfir vertíðina og fyrir þurrfisk að sumrinu. Þegar húsið var ekki notað til fiskgeymslu var húsið samkomuhús Eyjamanna. Þá var húsið notað til veisluhalda, leiksýninga og grímudansleikja. Var það aðallega notað til þessa á síðustuáratugum 19. aldarinnar og fram yfir aldamót 1900.



Heimildir

  • Karl Guðmundsson. Ég man þá tíð... Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1975.