Kristján Sigurður Guðmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Kristján Sigurður Guðmundsson.

Kristján Sigurður Guðmundsson sjómaður, stýrimaður, bóndi fæddist 18. mars 1943 á Lágafelli við Vestmannabraut 10.
Foreldrar hans voru Guðmundur Kristjánsson sjómaður, vélstjóri, bifreiðastjóri, verslunarmaður, kaupmaður, f. 23. júní 1915, d. 29. mars 1986, og kona hans Hálfdánía Sigríður Kristjánsdóttir, húsfreyja, f. 16. júlí 1909, d. 22. júní 2000.

Börn Sigríðar og Guðmundar:
2. Guðbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja á Akureyri, f. 25. október 1940 á Jaðri. Fyrri maður hennar Magnús Runólfur Gíslason. Maður hennar Egill Ingvi Ragnarsson.
3. Kristján Sigurður Guðmundsson bóndi í Steinum III u. Eyjafjöllum, f. 18. mars 1943 á Lágafelli. Kona hans Ólöf Bárðardóttir.
4. Grétar Guðni Guðmundsson á Seltjarnarnesi, f. 10. ágúst 1945 á Lágafelli. Kona hans Anna Guðrún Hafsteinsdóttir.
5. Rannveig Olena Guðmundsdóttir, (síðar Rannveig Olena Freni), húsfreyja í New Hampshire í Bandaríkjunum, f. 4. júlí 1946 að Blómsturvöllum. Maður hennar Joseph Freni yngri.
6. Guðný Helga Guðmundsdóttir, f. 16. júní 1953 að Blómsturvöllum, ógift og barnlaus. Barn Sigríðar áður:
1. Guðmundur Helgi Guðmundsson, f. 4. september 1935 á Kanastöðum, hrapaði 15. maí 1953.

Kristján lauk prófum í Stýrimannaskólanum í Eyjum 1964.
Hann var sjómaður frá 15 ára aldri, háseti, og stýrimaður, en gerðist bóndi í Steinum u. Eyjafjöllum, bjó þar frá 1985 í 29 ár.
Þau Ólöf giftu sig 1965, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í Bergholti við Vestmannabraut 67 og í Hrauntúni 31.

I. Barnsmóðir Kristjáns var Bjarnheiður Jóhannsdóttir, f. 10. janúar 1937, d. 10. ágúst 1969.
Barn þeirra:
1. Jóhann Ragnar Kristjánsson, þýðandi, f. 24. desember 1961. Kona hans Anna Ragnarsdóttir.

II. Kona Kristjáns, (11. desember 1965), er Ólöf Bárðardóttir húsfreyja, f. 31. desember 1940.
Börn þeirra:
1. Guðmundur Helgi Kristjánsson, pípulagningamaður, f. 30. júlí 1965. Barnsmóðir hans Anný Hafþórsdóttir. Fyrrum sambúðarkona hans Margrét Huld Björnsdóttir.
2. Bárður Óli Kristjánsson, starfsmaður hjá Kynnisferðum, f. 19. júlí 1966. Barnsmóðir hans Kristín Erna Arnardóttir.
3. Sigurður Örn Kristjánsson, verslunarmaður, f. 17. september 1967. Barnsmóðir hans Sigrún Grétarsdóttir. Kona hans Guðrún Þórisdóttir.
4. Anna Bára Kristjánsdóttir verslunarmaður, f. 2. desember 1978. Barnsfaðir hennar Smári Óskar Hólmarsson. Sambúðarmaður hennar Þórarinn Þorleifsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Kristján.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.