Kristinn Kristinsson (Miðhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. maí 2022 kl. 13:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. maí 2022 kl. 13:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Kristinn Kristinsson''' frá Miðhúsum, sjómaður fæddist 11. mars 1933 í Hólmgarði við Vestmannabraut 12 og lést 1. janúar 1997.<br> Foreldrar hans voru Kristinn Ástgeirsson á Miðhúsum, sjómaður, trillukarl, vigtarmaður, listamaður, f. 6. ágúst 1894, d. 31. júlí 1981, og kona hans Jensína María Matthíasdóttir frá Færeyjum, húsfreyja, f. 16. febrúar 1892 í Kvívík, d. 28. maí 1947. Börn Jensínu og Kristins:<b...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Kristinn Kristinsson frá Miðhúsum, sjómaður fæddist 11. mars 1933 í Hólmgarði við Vestmannabraut 12 og lést 1. janúar 1997.
Foreldrar hans voru Kristinn Ástgeirsson á Miðhúsum, sjómaður, trillukarl, vigtarmaður, listamaður, f. 6. ágúst 1894, d. 31. júlí 1981, og kona hans Jensína María Matthíasdóttir frá Færeyjum, húsfreyja, f. 16. febrúar 1892 í Kvívík, d. 28. maí 1947.

Börn Jensínu og Kristins:
1. Jakob Matthías Kristinsson, f. 1. október 1916, d. 23. júní 1931.
2. Guðjón Kristinn Kristinsson vélstjóri, skipstjóri, f. 29. nóvember 1917, d. 28. mars 1975.
3. Valdimar Kristinsson verkamaður, síðast í Innri-Akraneshreppi, f. 8. nóvember 1919, d. 30. maí 1988.
4. Drengur, f. í júní 1921, d. 6. júlí 1921.
5. Jens Kristinsson sjómaður, beitningamaður, verkamaður, f. 13. september 1922, d. 12. júní 2015.
6. Ásgeir Kristinsson, f. 16. júní 1924, d. 9. nóvember 1929.
7. Finnbogi Kristinsson, f. 13. febrúar 1926, d. 11. desember 1926.
8. Tryggvi Kristinsson, f. 21. mars 1928, d. 25. desember 1969.
9. Kristinn Kristinsson sjómaður, f. 11. mars 1933, d. 1. janúar 1997.
Sonur Kristins Ástgeirssonar og Oktavíu Þórunnar Jóhannsdóttur:
10. Jóhann Kristinsson verslunarmaður í Reykjavík, f. 9. janúar 1913, d. 13. október 1985.

Kristinn var með foreldrum sínum í Hólmgarði og á Miðhúsum, en móðir hans lést, er hann var á fimmtánda árinu.
Hann var sjómaður í áratugi, síðustu árin matsveinn.
Kristinn stundaði mikið lundaveiði og seldi reittan lunda úr höndum Jóhönnu. Einnig rak hann gæsa og andarækt.
Þau Jóhanna giftu sig 1958, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Kirkjuvegi 9, síðar í Brekkuhúsi.
Kristinn lést 1997 og Jóhanna 2010.

I. Kona Kristins, (20. september 1958), var Jóhanna Kolbrún Jensdóttir frá Hlaðbæ, húsfreyja, f. 4. desember 1938, d. 8. júní 2010.
Börn þeirra:
1. Kristinn Jens Kristinsson, f. 18. janúar 1958.
2. Bára Kristinsdóttir, f. 10. mars 1959.
3. Sigríður Kosek Kristinsdóttir, f. 4. júní 1967.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.