Kristinn Ó. Guðmundsson (Viðey)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. desember 2021 kl. 20:15 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. desember 2021 kl. 20:15 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Kristinn Óskar Guðmundsson.

Kristinn Óskar Guðmundsson frá Viðey, lögfræðingur, bæjarstjóri fæddist 2. nóvember 1924 í Viðey og lést 26. febrúar 2011.
Foreldrar hans voru Guðmundur Einarsson frá Bjólu bóndi, útgerðarmaður í Viðey, f. 18. nóvember 1885 í Rifshalakoti í Ásahreppi, Rang., d. 14. mars 1943 í Eyjum, og kona hans Pálína Jónsdóttir húsfreyja, f. 14. júlí 1880 í Norður-Nýjabæ í Djúpárhreppi, d. 6. mars 1963 í Reykjavík.

Börn Pálínu og Guðmundar:
1. Guðmunda Pálína Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 8. júlí 1908, d. 24. desember 1987. Maður hennar var Adolph Lauritz Hólm.
2. Jónína Þórunn Guðmundsdóttir, f. 1. desember 1909, d. 19. júní 1910.
3. Karl Óskar Guðmundsson skipstjóri, f. 6. apríl 1911, d. 16. janúar 1986.
4. Jón Óskar Guðmundsson bóndi í Norður-Nýjabæ í Djúpárhreppi, Rang., síðar smiður í Reykjavík, f. 30. mars 1912, d. 17. mars 2009. Hann var fóstraður hjá Jóni Jónssyni og Þórunni Pálsdóttur móðurforeldrum sínum í Norður-Nýjabæ. Kona hans var Sigurbjörg Gísladóttir.
5. Ármann Óskar Guðmundsson útgerðarmaður, bifreiðastjóri, f. 28. maí 1913, d. 3. júlí 2002.
6. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir húsfreyja á Flateyri, f. 2. ágúst 1914, d. 26. apríl 2006.
7. Guðríður Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 16. desember 1915, d. 29. maí 2011.
8. Ingibjörg Guðmundsdóttir húsfreyja í Viðey, f. 19. apríl 1917, d. 14. október 1998.
9. Þórunn Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 26. júlí 1918, d. 2. janúar 2012. Hún var fóstruð hjá Jóni Jónssyni og Þórunni Pálsdóttur móðurforeldrum sínum í Norður-Nýjabæ. Maður hennar var Óskar Pálsson.
10. Geir Óskar Guðmundsson véltæknifræðingur í Reykjavík , f. 18. desember 1920, d. 5. október 1991.
11. Sigurður Óskar Guðmundsson verkamaður í Viðey, f. 25. mars 1922, d. 27. janúar 1980.
12. Kristinn Óskar Guðmundsson lögfræðingur, bæjarstjóri, f. 2. nóvember 1924, d. 26. febrúar 2011.
Börn Guðmundar Einarssonar og Guðbjargar Erlendsdóttur vinnukonu, f. 11. desember 1891, d. 13. janúar 1957:
13. Aðalheiður Guðmundsdóttir verslunarmaður í Reykjavík, f. 25. nóvember 1919, d. 5. ágúst 2008. Hún var ógift.
14. Guðbjörg Svava Guðmundsdóttir húsfreyja á Ísafirði, f. 16. september 1921, d. 22. desember 2007. Maður hennar var Ólafur Markús Guðjónsson stýrimaður.
15. Ólafía Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 16. september 1921, d. 17. apríl 1992.
Barn Guðmundar Einarssonar og Steinunnar Guðmundsdóttur vinnukonu á Bjólu í Djúpárhreppi:
16. Helgi Guðmundsson bóndi í Borgarholti í Stokkseyrarhreppi, f. 13. september 1902, d. 25. september 1932. Kona hans var Steinvör Jónsdóttir.
Uppeldisbróðir systkinanna, sonur Guðbjargar Erlendsdóttur vinnukonu er
17. Ragnar Hafliðason málarameistari, kaupmaður, f. 12. nóvember 1928 í Viðey, d. 3. desember 2019.

Kristinn ólst upp með foreldrum sínum. Hann starfaði mikið á sjó og við bústörf meðan á námsárum stóð, útskrifaðist frá lagadeild Háskóla Íslands 1953, varð hæstaréttarlögmaður 1966.
Kristinn vann lögfræðistörf í Reykjavík og Hafnarfirði, en 1966 var hann kjörinn bæjarstjóri í Hafnarfirði og var þar til 1979. Eftir það starfaði hann sem forstöðumaður Húsatrygginga Reykjavíkur fram til 1992, er hann lét af störfum.
Þau Jóhanna giftu sig 1955, eignuðust eitt barn.
Jóhanna lést 2004 og Kristinn 2011.

I. Kona Kristins, (15. október 1955), var Jóhanna Sigurðardóttir húsfreyja, f. 18. janúar 1927 í Hörgsholti, d. 12. janúar 2004.
Barn þeirra:
1. Sigurður Ásgeir Kristinsson læknir, sérfræðingur í bæklunarskurðlækningum, framkvæmdastjóri, f. 20. október 1958. Fyrrum kona hans var Solveig Þórisdóttir. Barnsmóðir hans Inga Björg Júlíusdóttir. Síðari kona hans er Supranee Aris Saengkhao.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Læknar á Íslandi. Gunnlaugur Haraldsson. Þjóðsaga 2000.
  • Morgunblaðið 1. apríl 2011. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.