Kristinn Ástgeirsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. júní 2006 kl. 10:41 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. júní 2006 kl. 10:41 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kristinn Ástgeirsson frá Miðhúsum fæddist árið 1894.

Á yngri árum vann Kristinn við sjómennsku og almenn verkamannastörf. Það var ekki fyrr en eftir miðjan aldur að hann hóf að mála. Hann hafði mikla unun af myndlistinni og sótti gjarnan myndefni í umhverfið og í daglegt líf í Vestmannaeyjum.

Myndirnar eftir Kristinn Ástgeirsson frá Miðhúsum í eigu Listasafns Vestmannaeyja teljast til mikilvægra heimilda um atvinnuhætti og verklag fólks í Vestmannaeyja í upphafi 20. aldar.

Kristinn hélt einungis eina einkasýningu á ævinni en hann sýndi á Hallveigarstöðum í Reykjavík sumarið 1973, þá að verða 79 ára gamall.

Kristinn lést árið 1981.