Kristbjörg Sigurjónsdóttir (Skógum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Kristbjörg Sigurjónsdóttir.

Kristbjörg Ingileif Sigurjónsdóttir frá Skógum við Bessastíg 8, húsfreyja, ræstitæknir fæddist þar 11. desember 1931 og lést 31. janúar 2024 í Hraunbúðum.
Foreldrar hennar voru Sigurjón Ingvarsson skipstjóri, f. 20. desember 1895 að Klömbru u. Eyjafjöllum, d. 29. mars 1986, og kona hans Hólmfríður Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 2. nóvember 1906 á Hólmi í Stokkseyrarhreppi, d. 11. mars 1991.

Börn Hólmfríðar og Sigurjóns:
1. Ingvar Sigurjónsson sjómaður, trésmiður, f. 7. júní 1926 á Búðarfelli, d. 15. júlí 2015.
2. Jóhanna Sigurjónsdóttir húsfreyja á Skagaströnd, f. 13. júní 1928 á Heiðarbóli, d. 14. desember 1990.
3. Kristbjörg Ingileif Sigurjónsdóttir húsfreyja, ræstingakona, f. 11. desember 1931 í Skógum.
4. Ása Hólmfríður Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 2. nóvember 1944 í Skógum, d. 28. ágúst 2020.

Kristbjörg var með foreldrum sínum.
Hún vann við fiskiðnað, síðar við ræstingar á Sjúkrahúsinu, í Barnaskólanum og á Bókasafninu.
Kristbjörg vann fyrir Slysavarnadeildina Eykyndil og var virkur félagi í Félagi eldri borgara.
Þau Grétar giftu sig 1950, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Vallargötu 4.
Grétar fórst með vb. Þráni 1968.
Kristbjörg bjó við Eyjahraun, dvaldi síðast í Hraunbúðum.
Hún lést 2024.

I. Maður Kristbjargar, (31. október 1950), var Grétar Skaftason skipstjóri, f. 20. október 1926 á Suður-Fossi í Mýrdal, drukknaði 5. nóvember 1968.
Börn þeirra:
1. Ingólfur Grétarsson stýrimaður, skipstjóri, f. 7. september 1950 á Bessastíg 8. Fyrrum kona hans Ásta Finnbogadóttir.
2. Sigurjón Ragnar Grétarsson stýrimaður, skipstjóri, rafeindavirki, f. 21. október 1954 á Vallargötu 4. Fyrrum sambúðarkona hans Guðrún Fjóla Kolbeinsdóttir. Kona hans Þórgunnur Hjaltadóttir.
3. Ófeigur Grétarsson rafeindavirki, f. 11. október 1962 að Vallargötu 4. Kona hans Ragnheiður Þorvaldsdóttir, látin. Sambúðarkona hans Guðrún Þorsteinsdóttir.
4. Gréta Hólmfríður Grétarsdóttir kaupmaður, sjúkraliði, f. 4. febrúar 1969. Maður hennar Heiðar Hinriksson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 21. febrúar 2024. Minning.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.
  • Ættingjar.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.