Kristín Sigurðardóttir (Fagurhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Sigurðardóttir frá Hafnarnesi-Níelsarbæ í Stöðvarsókn, S.-Múl., húsfreyja fæddist þar 6. október 1906 og lést 27. maí 1981.
Foreldrar hennar voru Sigurður Eiríksson Ármann bóndi, útgerðarmaður, sjómaður í Hafnarnesi, f. 13. ágúst 1878, drukknaði 4. október 1932 og kona hans Þuríður Níelsdóttir húsfreyja, f. 20. september 1881, d. 16. mars 1949.

Kristín var með foreldrum sínum í Níelsarbæ á Hafnarnesi 1910, var gestur í Melkoti á Búðum 1920.
Þau Sigurður voru í sambúð, hún titluð bústýra.
Hún eignaðist fyrsta barn sitt með Sigurði í Hafnarnesþorpinu 1922.
Þau voru bændur á Efri-Garðsá á Hafnarnesi 1928-1929 og á Sléttu þar 1930-1939 og á Garðsá þar 1940-1942, á Melbrún þar 1943-1952.
Þau Sigurður fluttu til Eyja 1953, bjuggu í Hjálmholti við Urðaveg 34, síðar í Fagurhól við Strandveg 55.
Sigurður lést 1972 og Kristín 1981.

I. Sambúðarmaður Kristínar var Sigurður Karlsson frá Hafnarnesi í Fáskrúðsfirði, bóndi, sjómaður, útgerðarmaður, trillukarl, f. 29. mars 1904, d. 12. ágúst 1972.
Börn þeirra:
1. María Sigþrúður Sigurðardóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 14. september 1922, d. 4. maí 2005. Maður hennar Magnús Benjamínsson.
2. Karl Emil Sigurðsson vélstjóri, f. 8. janúar 1924, d. 18. nóvember 2010. Kona hans Helga Þorkelsdóttir
3. Jórunn Þórunn Sigurðardóttir húsfreyja, f. 27. október 1925, d. 3. ágúst 1967. Maður hennar Ólafur Erlendsson.
4. Óskar Sigurðsson, f. 19. maí 1927.
5. Rafn Sigurðsson sjómaður, leigubifreiðastjóri, f. 29. mars 1929, d. 27. ágúst 1988. Fyrrum kona hans Lene Ebbesen. Fyrrum kona hans Fanney Sigurjónsdóttir.
6. Jón Sigurðsson, f. 1. febrúar 1931, d. 4. apríl 1931.
7. Erna Guðmundína Sigurðardóttir húsfreyja, f. 16. maí 1932, d. 6. apríl 2022. Fyrri maður hennar var Björgvin Óskarsson, látinn. Síðari maður hennar Kristinn Jónsson.
8. Ásta Sigurðardóttir húsfreyja, f. 1. ágúst 1933, d. 9. mars 2022. Barnsfaðir hennar Ragnar Runólfsson. Maður hennar Garðar Ásbjörnsson.
9. Oddný Fjóla Sigurðardóttir húsfreyja, f. 13. október 1936. Maður hennar Bernharð Ingimundarson.
10. Valgerður Jóna Sigurðardóttir, f. 15. desember 1942. Maður hennar Rúnar Eiríkur Siggeirsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.