Kristín Þórólfsdóttir (Dalahjalli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. maí 2014 kl. 17:18 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. maí 2014 kl. 17:18 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Kristín Þórólfsdóttir (Dalahjalli)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Þórólfsdóttir frá Bryggjum í A-Landeyjum, húsfreyja í Dalahjalli, fæddist 1765 og lést 11. október 1830.
Faðir hennar var Þórólfur bóndi á Bryggjum, f. 1734, dauðfraus „milli fjalls og byggða“ 5. október 1802, Jónsson bónda á Bryggjum, f. um 1695, Þórólfssonar (ætt ókunn).
Kona Jóns Þórólfssonar á Bryggjum og móðir Þórólfs á Bryggjum var Ástríður húsfreyja, f. 1701, Jónsdóttir bónda í Dufþaksholti í Hvolhreppi, f. 1668, Bjarnasonar, og konu hans, Sigríðar húsfreyju, f. 1665, Filippusdóttur.

Móðir Kristínar Þórólfsdóttur og kona Þórólfs var Margrét húsfreyja á Bryggjum, f. 1735, d. 3. mars 1819, Jónsdóttir bónda á Skarfanesi og Járnlaugsstöðum á Landi, f. 1706, d. fyrir 1770, Magnússonar bónda í Hvammi á Landi, f. 1654, Gunnarssonar, og síðari konu Magnúsar í Hvammi, Guðrúnar húsfreyju, f. 1669, Auðunsdóttur.
Móðir Margrétar á Bryggjum og kona Jóns á Skarfanesi var Hólmfríður húsfreyja, f. 1710, á lífi 1776, Árnadóttir bónda á Kvíhúsum í Grindavík, f. 1674, Jónssonar og konu hans, Þorbjargar húsfreyju, f. 1665, Vilhjálmsdóttur.

Kristín var gift húskona í Bakkahjáleigu í A-Landeyjum 1801. Þar var Þorbjörn Jónsson kvæntur vinnumaður og barnið Ástríður Þorbjörnsdóttir eins árs.
Þorbjörn lést 1811.
Við manntal 1816 er Kristín komin í Dalahjall og með henni er barnið Jón Þorbjörnsson fæddur 1801, en Ástríður er ekki á staðnum, heldur niðursetningur í Bakkahjáleigu.

Kristín Þórólfsdóttir var tvígift:
I. Fyrri maður hennar var Þorbjörn Jónsson tómthúsmaður í Dalahjalli, f. 1765, d. 20. febrúar 1811. Hann var vinnumaður í Bakkahjáleigu í A-Landeyjum 1801.
Börn þeirra hér:
1. Ástríður Þorbjörnsdóttir, f. 22. september 1799, d. 29. apríl 1883.
2. Jón Þorbjörnsson í Dalahjalli, f. 1801 í Bakkahjáleigu í A-Landeyjum, d. 3. október 1830 af slysförum.
3. Margrét Þorbjörnsdóttir, f. í júní 1802, d. 8. júní 1802 úr ginklofa.
4. Valgerður Þorbjörnsdóttir, f. 10. september 1803, dó 21. september 1803 úr ginklofa.
5. Andvana barn, f. 21. júlí 1805.
6. Vilhjálmur Þorbjörnsson, f. 26. september 1807, d. 3. október 1807 úr ginklofa.
7. Andvana barn, jarðað 7. apríl 1809.

II. Síðari maður Kristínar var Jón Þorsteinsson tómthúsmaður í Dalahjalli 1816, f. 1778 í Saurbæ í Skagafirði, d. í febrúar 1827.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Árni Árnason.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Landmannabók – Landsveit. Valgeir Sigurðsson, Ragnar Böðvarsson og fleiri. Rangárþing ytra, Hellu 2003.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.