Konráð Ingimundarson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. október 2015 kl. 20:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. október 2015 kl. 20:47 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Konráð Ingimundarson sjómaður, vélstjóri í Götu, síðar í Reykjavík, fæddist 26. júní 1886 og lést 6. júlí 1957.
Foreldrar hans voru Ingimundur Árnason sjómaður í Götu, f. 18. júlí 1859, d. 1. október 1923, og sambýliskona hans Sigurveig Vigfúsdóttir húsfreyja, f. 29. september 1862, d. 29. apríl 1946.

Alsystkini Konráðs voru:
1. Bjarnfreður Jóhann Ingimundarson bóndi á Syðri-Steinsmýri í Meðallandi, f. 12. september 1889 í Gamlabæ (Syðri-Steinsmýri) í Meðallandi, d. 16. mars 1962 í Reykjavík.
2. Gunnar Ingiberg Ingimundarson verkamaður í Eyjum, f. 17. apríl 1894, d. 4. mars 1965, síðast í Reykjavík.
3. Brynhildur Ingimundardóttir húsfreyja, f. 20. maí 1897, d. 27. september 1973. Hún kom til Eyja 1899, varð húsfreyja á Bakkakoti og á Melum á Kjalarnesi, síðan í Reykjavík.
Hálfsystkini Konráðs voru:
4. Pálmi Kristinn Ingimundarson, f. 11. febrúar 1904, d. 19. apríl 1963.
5. Þórarinn Ingimundarson, f. 21. ágúst 1905 á Vilborgarstöðum, d. 1. júní 1906.
6. Enok Ingimundarson, f. 29. ágúst 1907 á Vilborgarstöðum, d. 2. júlí 1974.
Uppeldisbróðir Konráðs, sonur Pálínu síðari konu föður hans:
7. Einar Valdimar Jónasson, f. 16. október 1892, d. 1922.

Konráð var með foreldrum sínum í frumbernsku, en var 4 ára á Kirkjubæ 1889, í Litlakoti 1891, en þá var móðir hans í Meðallandi og fæddi Bjarnfreð þar 1889.
Hann fór með föður sínum til Seyðisfjarðar 1892, kom til Eyja frá Mjóafirði 1899.
Þau Guðrún Sigríður giftust 1912 og bjuggu í Götu. Þau fluttust til Reykjavíkur 1917.
Sama ár var Jón Einar fluttur til Sigurveigar ömmu sinnar í Mýrdal.
Sigríður María var í fóstri hjá Guðnýju Stefánsdóttur og Jóhanni Guðmundssyni í Götu,
Konkordía var í fóstri hjá Steinvöru í Nýjabæ.
Nikólína Guðfinna var fóstruð á Hjalla hjá Kristólínu og Sveini Scheving.
Þau misstu Pálínu Mundínu Sigurveigu af brunasárum, eftir slys í Þvottalaugunum í Reykjavík 1918.
Í Reykjavík fæddust þeim 4 börn.
Börn þeirra Konráðs, sem fæddust í Eyjum, giftust upp á land.
Konráð lést 1957.

Kona hans, (23. febrúar 1912, skildu), var Guðrún Sigríður Einarsdóttir húsfreyja, f. 16. ágúst 1887 í Húsavík eystra, d. 3. febrúar 1967.
Börn þeirra hér:
1. Jón Einar Konráðsson sjómaður bifreiðastjóri í Reykjavík, f. 10. október 1909 á Norðfirði, d. 28. júlí 1985.
2. Nikólína Guðfinna Konráðsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 12. maí 1912 í Götu, d. 9. janúar 1991.
3. Pálína Mundína Sigurveig Konráðsdóttir, f. 17. september 1913 í Götu, dó 16. júní 1918 af brunasárum eftir slys í Þvottalaugunum í Reykjavík.
4. Konkordía Konráðsdóttir (Níelsson) húsfreyja, síðast í Reykjavík, f. 28. apríl 1915 í Götu, d. 24. október 2004.
5. Sigríður María Konráðsdóttir húsfreyja í Hveragerði, f. 9. september 1916 í Eyjum, d. 16. mars 2003.
6. Símon Ingvar Konráðsson málari í Reykjavík, f. 17. júní 1919 í Reykjavík, d. 29. september 2008.
7. Sigurveig Stella Konráðsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 28. febrúar 1922, d. 13. mars 2007.
8. Ágúst Ingimundur Konráðsson verkamaður í Reykjavík, f. 2. júlí 1923, d. 4. febrúar 1982.
9. Elínberg Sveinbjörn Konráðsson, f. 28. apríl 1928, d. 28. júlí 2006.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.