Kjartan Guðmundsson (ljósmyndari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. október 2022 kl. 19:42 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. október 2022 kl. 19:42 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Kjartan Guðmundsson á Kjartan Guðmundsson (ljósmyndari))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Kjartan er í efri röð lengst til vinstri.
Kjartan

Kjartan Guðmundsson fæddist 31. maí 1885 og lést 15. nóvember 1950. Foreldrar hans voru Guðmundur Jónsson, bóndi í Hörgsholti, Hrunamannahreppi, og k.h. Katrín Bjarnadóttir.
Kjartan var ókvæntur og barnlaus.

Kjartan sat skógræktar- og garðyrkjunámskeið vorið 1903 hjá Einari Helgasyni, garðyrkjustjóra í Reykjavík. Hann lærði svo ljósmyndun hjá Carli Ólafssyni um 1906.

Kjartan vann við jarðabótastörf og plægingar víða á Suðurlandi á árunum 1903-1910. Samhliða stundaði hann ljósmyndun og tók ljósmyndunin yfirhöndina frá 1910. Þá hóf hann rekstur ljósmyndastofu á Eyrarbakka. Ljósmyndari var hann í Vík í Mýrdal frá 1916 til 1920.

Kjartan flutti til Vestmannaeyja og starfrækti ljósmyndastofu frá 1924 til 1950. Samhliða ljósmynduninni var hann útgerðarmaður hér í Eyjum.
Starfsmaður ljósmyndastofunnar í Vestmannaeyjum var Eygló Stefánsdóttir. Kjartan var einn af stofnendum Taflfélags Vestmannaeyja.

Ljósmyndir Kjartans eru varðveittar í Ljósmyndasafni Vestmannaeyja. Vestmannaeyjabæ voru gefnar 15.000 glerplötur og voru flestar mannamyndir. Meirihluti þeirra mynda var greindur en 2.000 plötur fengust ekki greindar (mest myndir af börnum) og var þeim hent. Útimyndaplötur Kjartans hafa dreifst víða og eru nokkrar í eign Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Þær glerplötur sem Kjartan tók á Eyrarbakka voru notaðar í húsgrunn þar í bæ. Glerplötur sem voru á leið til varðveislu í Reykjavík glötuðust er Glitfaxi fórst 21. janúar 1951.

Myndir


Heimildir

  • Inga Lára Baldvinsdóttir. Ljósmyndarar á Íslandi 1845-1945. Reykjavík: Þjóðminjasafn Íslands og JPV útgáfa, 2001.