Kirkjugerði

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. júlí 2005 kl. 10:57 eftir Simmi (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. júlí 2005 kl. 10:57 eftir Simmi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Leikskólinn Kirkjugerði stendur við Dalhraun og var reistur fyrir gjafafé frá söfnun Hjálparstofnun kirkjunnar og var því gefið nafnið Kirkjugerði. Vestmannaeyjabær er rekstraraðili leikskólans.

Bygging hússins hófst 19.apríl 1974 og lauk í september 1974 og var húsið vígt í október sama ár. Húsið er timburhús og var til að byrja með tveggja deilda leikskóli.

Árið 1976 var gömlu viðlagasjóðshúsi bætt við Kirkjugerði og dvöldu þar 12 börn á tveggja ára aldri. Viðlagasjóðshúsið stóð á sömu lóð og var því ekki innangengt á milli. Það var svo árið 1991 í maí að viðlagasjóðshúsið var rifið og hafist var handa við að byggja við leikskólann. Í september sama ár var tekin í notkun hluti af viðbyggingunni eða 125 fermetrar. Sá hluti saman stóð að starfsmannaaðstöðu og leikfimisal. Til að byrja með var leikfimisalurinn og hluti af starfsmannaaðstöðunni notað undir þriðju deildina, sem áður var í gámnum.

Í mars 1994 var nýja álman að fullu tilbúin, 563 fermetrar að stærð. Fjórar deildar eru nú í húsinu sem heita gula-, rauða-, græna- og bláa deild.

Leikskólinn starfar eftir aðalnámskrá leikskóla frá árinu 1999. Frá 1998 hefur Kirkjugerði unnið með umhverfið og náttúruna. Við höfum aflað okkur allskyns upplýsinga um endurvinnslu og nýtingu á hinum ýmsu hlutum og heimsótt leikskóla sem vinna líkt og við. Stefnan er tekin á að Kirkjugerði verði umhverfisvænn leikskóli sem stuðli að umhverfismenntun með umhverfið og náttúruna að leiðarljósi. Einnig nýtum við sögu eyjanna og farið er í göngur að hinum ýmsu kennileitum og örnefnum sem eru í Vestmannaeyjum. Elstu börnin læra ,,eyjalög” í skólahóp. Unnið er með „Markvissri málörvun“ í leikskólanum.

Hið daglega starf er margvíslegt, leikfimi, samverustundir, söngstundir, markviss málörvun, valstundir, skólahópur og margt fleira. Ritmálið er sýnilegt á leikskólanum og vísur, þulur í myndmáli.

Á leikskólanum eru 4 deildir, tvær hálfsdagsdeildir og tvær með sveigjanlegan vistunartíma frá 6 tímum upp í 10 tíma vistun.

  • Gula – og rauða deild eru fyrir börn frá 4-6 ára.
  • Græna – og bláa deild eru fyrir börn 2 – 4 ára.


Tæknilegar upplýsingar

  • Heimilisfang:
Dalhrauni 1
900 Vestmannaeyjar
  • Sími:
4811098
  • Fax:
4811181
  • Veffang:
www.vestmannaeyjar.is
  • Netfang:
kirkjug@vestmannaeyjar.is
  • Leikskólastjóri:
Alda Gunnarsdóttir
  • Aðstoðarleikskólastjóri:
Emma H. Sigurgeirsdóttir
  • Opnunartímar:
Mán - Fös 7.30 - 17.30