Ketilsstaðir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. febrúar 2006 kl. 00:50 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. febrúar 2006 kl. 00:50 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Smáviðbót og tenglar)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Ketilsstaðir stendur við Hrauntún 20. Sigurgeir Jónsson, frá Þorlaugargerði eystra og Katrín Lovísa Magnúsdóttir, kona hans, byggðu húsið 1972 og er nafnið tekið frá æskuheimili Katrínar í Hvammssveit í Dalasýslu. Árið 2005 bjuggu þar Davíð Guðmundsson, oft kenndur við fyrirtæki sitt Tölvun, og Aðalheiður Jensdóttir.