„Jarðfræði“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Athugsemdir skv.Ingvar Atla Sigurðssyni)
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
Vestmannaeyjar liggja um 10 km suður undan Landeyjasandi. Eyjaþyrpingin samanstendur af 14 eyjum og auk þeirra eru um 30 drangar og sker. Eyjarnar eru sæbrattar og víðast hvar þaktar graslendi. Af þeim er Heimaey langstærst eða um 13,4 km² og hún er sú eina sem er í byggð. Helstu og stærstu eyjarnar í kringum [[Heimaey]] eru [[Elliðaey]] og [[Bjarnarey]] norðaustur af Heimaey og til suðvesturs [[Suðurey]], [[Álsey]], [[Brandur]], [[Hellisey]], [[Súlnasker]] og [[Surtsey]].  

Menn hafa öldum saman velt fyrir sér uppruna Vestmannaeyja á jarðfræðilegum forsendum, og taldi Jónas Hallgrímsson til dæmis að eyjarnar hafi eitt sinn verið samfastar Eyjafjöllum, en að sjógangur og vindar hafi „nagað sundur tengslin“ við meginlandið:
Menn hafa öldum saman velt fyrir sér uppruna Vestmannaeyja og taldi Jónas Hallgrímsson til dæmis að eyjarnar hafi eitt sinn verið samfastar Eyjafjöllum, en að sjógangur og vindar hafi „nagað sundur tengslin“ við meginlandið:

:„''Undirlag þeirra er allt móberg með blágrýtis- og stuðlagrjótskömbum, er ganga upp í gegnum það hingað og þangað, og sums staðar ofan á því nokkur lög af grásteini, sums staðar líka, efst og yngst, eldhraun, komið úr Helgafelli [...] Má af öllu sjá, að það er hið sama jarðlag, sem liggur undir rótum Eyjafjallajökuls, og á saman við Seljalandsmúla og Fljótshlíðarhálsana; hefur það allt verið samfast til forna, fyrr en hafið braut það í sundur.''“

Jarðvísindamenn okkar tíma hafa aðrar skoðanir á sama máli:
Frekari rannsóknir hafa sýnt að Vestmannaeyjar hafa aldrei tengst meginlandinu heldur eru þær myndaðar að mestu við gos í sjó og hugsanlega að einhverju leyti við gos undir jökli. Eyjarnar eru ungar á jarðsögulegan mælikvarða og eru eru flestar yngri en 10.000 ára gamlar.

Eyjarnar eru ungar á jarðsögulegan mælikvarða og hafa allar myndast í eldgosum, þær elstu fyrir u.þ.b. 12 þúsund árum. Flestar eyjarnar eru gíglaga móbergsstapar og á sumum þeirra eru gjallgígar.
Vestmannaeyjar eru taldar eitt eldstöðvakerfi með miðju á Heimaey en kerfið í heild er um 38 km langt og 30 km breitt með 70-80 eldstöðvum eða leifum þeirra.
 
Vestmannaeyjar eru á umfangsmiklu eldgosasvæði sem er um 38 km langt og 30 km breitt með 70-80 eldstöðvum eða leifum þeirra.

== Heimaey ==
== Heimaey ==
''Sjá aðalgrein: [[Heimaey]]''
''Sjá aðalgrein: [[Heimaey]]''

Heimaey er eina eyjan í Vestmannaeyjaklasanum sem hefur myndast í fleiri en einu eldgosi. Mestöll eyjan er úr móbergi, en einnig er þó nokkuð af vikri, bólstrabergi og öðrum bergtegundum, sérstaklega í kringum nýja hraunið. Mikið er af holufyllingum á borð við kvartz á suðurhluta eyjunnar nálægt [[Ræningjatangi|Ræningjatanga]]. Um það bil 1/3 af eyjunni er fjalllendi.
Heimaey er eina eyjan í Vestmannaeyjaklasanum sem hefur myndast í fleiri en einu eldgosi. Norðurklettarnir eru elstir en svo koma Stórhöfði og Sæfjall en þessar myndanir tengjast svo þegar gýs þar sem nú er Helgafell. Um það bil 1/3 af eyjunni er fjalllendi.

=== Norðurklettarnir ===
=== Norðurklettarnir ===
Norðurklettarnir eru elsti hluti Heimaeyjar, en sá hluti er talinn a.m.k. 10-14 þúsund ára gamall. [[Heimaklettur]], [[Miðklettur]], [[Ystiklettur]] og [[Klif]]ið hafa myndast í gosum undir jökli og eru misgamlir móbergsstapar, en [[Dalfjall]] og þá [[Blátindur]] ásamt [[Moldi|Molda]] mynduðust við eldgos, sem hefur verið að einhverju leyti undir jökli, þar sem [[Herjólfsdalur]] er.
Norðurklettarnir eru elsti hluti Heimaeyjar, en sá hluti er talinn a.m.k. 10-14 þúsund ára gamall. [[Heimaklettur]], [[Miðklettur]], [[Ystiklettur]], [[Klif]]ið [[Dalfjall]], [[Blátindur]] hafa hugsanlega myndast við gos undir jökli á meðan Háin hefur orðið til í gosi sem líkst hefur Surtseyjargosinu.
Gígur er í [[Há]]nni og í Blátindi og liggur sprungan líklega að einhverju leyti eftir Dalfjallshryggi.
Herjólfsdalur er ekki gígur heldur er gígur í [[Há]]nni og annar í Blátindi og liggur gossprungan úr því gosi að einhverju leyti eftir Dalfjallshrygg.

=== Suðurklettarnir ===
=== Suðurklettarnir ===
[[Stórhöfði]], líkt og Heimaklettur, hefur myndast við gos undir jökli, enda er einnig um móbergsstapa að ræða þar. Stórhöfði er talinn vera um 10.000 ára gamall.
[[Stórhöfði]], hefur myndast við gos sem hefur verið svipað Surtseyjargosinu. Grunnurinn er nú móberg en þar ofan á leggst syrpa þunnra basalthraunlaga.

[[Kervíkurfjall]], [[Sæfjall]] og [[Litli höfði]] hafa myndast í jarðeldum með [[Stakkabót]] sem megineldstöð, en skerin [[Litli Stakkur]] og [[Stóri Stakkur]] hafa myndast í sama gosi. Þá hefur fláin milli [[Breiðabakki|Breiðabakka]] og Stórhöfða, þar sem [[Brimurð]] og [[Klauf]] eru, myndast við söfnun jarðefna þar á milli, mjög líkt og [[Þrælaeiði]]. [[Ræningjatangi]] hefur þó myndast í sama eldgosinu og Litli Höfði. Bergið frá Sæfjalli suður [[Garðsendi|Garðsenda]] er talið um 5.000 ára gamalt.
[[Sæfjall]] ásamt [[Kervíkurfjalli]] og [[Litla höfða]] hafa myndast við gos í sjó  fyrir um 5.000 árum og er miðja gígsins í [[Stakkabót]], skerin [[Litli Stakkur]] og [[Stóri Stakkur]] hafa myndast í sama gosi.  
[[Ræningjatangi]] er að hluta myndaður um leið og Stórhöfði en hluta við Sæfjallsgosið.

=== Helgafell ===
=== Helgafell ===
[[Helgafell]] er næstyngsta eldfjallið á Heimaey, talið vera um 5.000 ára gamalt, ögn yngra þó en Sæfjall. Helgafellsgosið tengdi saman norðurklettana og suðurklettana og gerði úr þeim eina heildstæða eyju. Hægt er að áætla að í gosinu hafi eyjan stækkað um allt að 7 km².
[[Helgafell]] er næstyngsta eldfjallið á Heimaey, talið vera um 5.000 ára gamalt, ögn yngra þó en Sæfjall. Helgafellsgosið tengdi saman norðurklettana og suðurklettana.  

=== Heimaeyjargosið ===
=== Heimaeyjargosið ===
Lína 33: Lína 32:
Eldgos hófst á Heimaey þann 23. janúar árið 1973 og stóð fram til 3. júlí sama ár. Á þeim tíma eyðilögðust og/eða skemmdust u.þ.b. 440 hús, en um þriðjungur húsa á eynni fór undir hraun.  
Eldgos hófst á Heimaey þann 23. janúar árið 1973 og stóð fram til 3. júlí sama ár. Á þeim tíma eyðilögðust og/eða skemmdust u.þ.b. 440 hús, en um þriðjungur húsa á eynni fór undir hraun.  

Í upphafi gossins opnaðist jarðsprunga frá suð-suðvestri til norð-norðausturs um 300 metrum austur af Kirkjubæ, og var sú sprunga um 2,3 km löng, en hún lokaðist að stórum hluta á fyrstu dögum gossins og einangraðist við megineldstöð.
Í upphafi gossins opnaðist gossprunga frá suð-suðvestri til norð-norðausturs um 300 metrum austur af Kirkjubæ, og var sú sprungan um 2,3 km löng, en hún lokaðist að stórum hluta á fyrstu dögum gossins. Eftir stóð eldfjallið [[Eldfell]], sem margir Vestmannaeyingar vildu kalla Kirkjufell, rétt norðaustan [[Helgafell]]s. Frá því rann [[Eldfellshraun]], sem teygir sig frá Skarfatanga í suðri að Skansinum í norðri, og stækkaði [[Heimaey]] við þetta um eina 3 ferkílómetra.  

Eftir stóð eldfjallið [[Eldfell]], sem margir Vestmannaeyingar vildu kalla Kirkjufell, rétt norðaustan [[Helgafell]]s. Frá því stendur [[Eldfellshraun]], sem teygir sig frá Skarfatanga í suðri að Skansinum í norðri, og stækkaði [[Heimaey]] við þetta um eina 3 ferkílómetra.
Eldfellshraun er basískt apalhraun að mestu, með nokkrum helluhraunsblettum.

== Úteyjar ==
== Úteyjar ==
Úteyjarnar urðu allar til í eldgosum undir jökli á síðustu ísöld, að undanskilinni [[Surtsey]]. Margar eyjanna, til dæmis Bjarnarey, hafa mjög augljósa gjallgíga, en aðrar eyjar eru ekki jafn áberandi að uppruna, til dæmis er gígurinn sem myndaði [[Álsey]] undir sjávarmáli.
Úteyjarnar urðu flestar til í eldgosum í sjó líkt og [[Surtsey]]. Margar eyjanna, til dæmis Bjarnarey, hafa mjög augljósa gjallgíga, en gígarnir á öðrum eyjum er ekki eins áberandi.

=== Surtsey ===
=== Surtsey ===
''Sjá aðalgrein: [[Surtseyjargosið]]''
''Sjá aðalgrein: [[Surtseyjargosið]]''

Surtsey varð til í miklu neðansjávargosi sem hófst árið 1963 og lauk 1967, og mun vera lengsta sögulega eldgos á Íslandi. Við upphaf gossins voru tvær eyjar sem mynduðust og fengu þær nöfnin [[Syrtlingur]] og [[Jólnir]]. Jólnir kom upp úr sjó rétt fyrir Þorláksmessu, og stóð fram yfir jólin 1963. Syrtlingur stóð mun lengur en leifar þessarra eyja mynduðu Surtsey seinna meir.
Surtsey varð til í neðansjávargosi sem hófst árið 1963 og lauk 1967, og er þetta lengsta gos á Íslandi á sögulegum tíma.   Í gosinu mynduðust auk Surtseyjar tvær minni eyjar [[Syrtlingur]] og [[Jólnir]] en þær hurfu fljótt aftur í hafið.  
 
Surtsey var lýst friðland strax árið 1965 og var sú friðlýsing endurskoðuð árið 1974.  
Strax að loknu gosinu var Surtsey friðuð, þar sem þetta var í fyrsta skiptið á sögulegum tíma sem ný eyja hafði myndast, og voru jarðfræðingar jafnt sem líffræðingar forvitnir um þróun lífríkisins á eyjunni og eyjunnar sjálfrar. Strax á fyrstu árunum eftir gosið fóru ýmsar lífverur að taka sér bólfestu þarna.
 
[[Flokkur:Um Vestmannaeyjar]]
[[Flokkur:Um Vestmannaeyjar]]

Lína 54: Lína 48:
* Þorleifur Einarsson, Gosið á Heimaey; Heimskringla, Reykjavík, 1974, ISBN 0-0003-057098
* Þorleifur Einarsson, Gosið á Heimaey; Heimskringla, Reykjavík, 1974, ISBN 0-0003-057098
* Ferðafélag Íslands, Árbók Ferðafélags Íslands; Ísafoldarprentsmiðja, Reykjavík, 1948, ISBN 0-0003-019302
* Ferðafélag Íslands, Árbók Ferðafélags Íslands; Ísafoldarprentsmiðja, Reykjavík, 1948, ISBN 0-0003-019302
* Ingvar Atli Sigurðsson, jarðfræðingur.
 
}}
}}

Útgáfa síðunnar 7. nóvember 2005 kl. 11:48

Vestmannaeyjar liggja um 10 km suður undan Landeyjasandi. Eyjaþyrpingin samanstendur af 14 eyjum og auk þeirra eru um 30 drangar og sker. Eyjarnar eru sæbrattar og víðast hvar þaktar graslendi. Af þeim er Heimaey langstærst eða um 13,4 km² og hún er sú eina sem er í byggð. Helstu og stærstu eyjarnar í kringum Heimaey eru Elliðaey og Bjarnarey norðaustur af Heimaey og til suðvesturs Suðurey, Álsey, Brandur, Hellisey, Súlnasker og Surtsey.

Menn hafa öldum saman velt fyrir sér uppruna Vestmannaeyja og taldi Jónas Hallgrímsson til dæmis að eyjarnar hafi eitt sinn verið samfastar Eyjafjöllum, en að sjógangur og vindar hafi „nagað sundur tengslin“ við meginlandið:

Undirlag þeirra er allt móberg með blágrýtis- og stuðlagrjótskömbum, er ganga upp í gegnum það hingað og þangað, og sums staðar ofan á því nokkur lög af grásteini, sums staðar líka, efst og yngst, eldhraun, komið úr Helgafelli [...] Má af öllu sjá, að það er hið sama jarðlag, sem liggur undir rótum Eyjafjallajökuls, og á saman við Seljalandsmúla og Fljótshlíðarhálsana; hefur það allt verið samfast til forna, fyrr en hafið braut það í sundur.

Frekari rannsóknir hafa sýnt að Vestmannaeyjar hafa aldrei tengst meginlandinu heldur eru þær myndaðar að mestu við gos í sjó og hugsanlega að einhverju leyti við gos undir jökli. Eyjarnar eru ungar á jarðsögulegan mælikvarða og eru eru flestar yngri en 10.000 ára gamlar.

Vestmannaeyjar eru taldar eitt eldstöðvakerfi með miðju á Heimaey en kerfið í heild er um 38 km langt og 30 km breitt með 70-80 eldstöðvum eða leifum þeirra.

Heimaey

Sjá aðalgrein: Heimaey

Heimaey er eina eyjan í Vestmannaeyjaklasanum sem hefur myndast í fleiri en einu eldgosi. Norðurklettarnir eru elstir en svo koma Stórhöfði og Sæfjall en þessar myndanir tengjast svo þegar gýs þar sem nú er Helgafell. Um það bil 1/3 af eyjunni er fjalllendi.

Norðurklettarnir

Norðurklettarnir eru elsti hluti Heimaeyjar, en sá hluti er talinn a.m.k. 10-14 þúsund ára gamall. Heimaklettur, Miðklettur, Ystiklettur, Klifið Dalfjall, Blátindur hafa hugsanlega myndast við gos undir jökli á meðan Háin hefur orðið til í gosi sem líkst hefur Surtseyjargosinu. Herjólfsdalur er ekki gígur heldur er gígur í Hánni og annar í Blátindi og liggur gossprungan úr því gosi að einhverju leyti eftir Dalfjallshrygg.

Suðurklettarnir

Stórhöfði, hefur myndast við gos sem hefur verið svipað Surtseyjargosinu. Grunnurinn er nú móberg en þar ofan á leggst syrpa þunnra basalthraunlaga.

Sæfjall ásamt Kervíkurfjalli og Litla höfða hafa myndast við gos í sjó fyrir um 5.000 árum og er miðja gígsins í Stakkabót, skerin Litli Stakkur og Stóri Stakkur hafa myndast í sama gosi. Ræningjatangi er að hluta myndaður um leið og Stórhöfði en að hluta við Sæfjallsgosið.

Helgafell

Helgafell er næstyngsta eldfjallið á Heimaey, talið vera um 5.000 ára gamalt, ögn yngra þó en Sæfjall. Helgafellsgosið tengdi saman norðurklettana og suðurklettana.

Heimaeyjargosið

Sjá aðalgrein: Heimaeyjargosið

Eldgos hófst á Heimaey þann 23. janúar árið 1973 og stóð fram til 3. júlí sama ár. Á þeim tíma eyðilögðust og/eða skemmdust u.þ.b. 440 hús, en um þriðjungur húsa á eynni fór undir hraun.

Í upphafi gossins opnaðist gossprunga frá suð-suðvestri til norð-norðausturs um 300 metrum austur af Kirkjubæ, og var sú sprungan um 2,3 km löng, en hún lokaðist að stórum hluta á fyrstu dögum gossins. Eftir stóð eldfjallið Eldfell, sem margir Vestmannaeyingar vildu kalla Kirkjufell, rétt norðaustan Helgafells. Frá því rann Eldfellshraun, sem teygir sig frá Skarfatanga í suðri að Skansinum í norðri, og stækkaði Heimaey við þetta um eina 3 ferkílómetra.

Úteyjar

Úteyjarnar urðu flestar til í eldgosum í sjó líkt og Surtsey. Margar eyjanna, til dæmis Bjarnarey, hafa mjög augljósa gjallgíga, en gígarnir á öðrum eyjum er ekki eins áberandi.

Surtsey

Sjá aðalgrein: Surtseyjargosið

Surtsey varð til í neðansjávargosi sem hófst árið 1963 og lauk 1967, og er þetta lengsta gos á Íslandi á sögulegum tíma. Í gosinu mynduðust auk Surtseyjar tvær minni eyjar Syrtlingur og Jólnir en þær hurfu fljótt aftur í hafið. Surtsey var lýst friðland strax árið 1965 og var sú friðlýsing endurskoðuð árið 1974.

Heimildir

  • Þorleifur Einarsson, Gosið á Heimaey; Heimskringla, Reykjavík, 1974, ISBN 0-0003-057098
  • Ferðafélag Íslands, Árbók Ferðafélags Íslands; Ísafoldarprentsmiðja, Reykjavík, 1948, ISBN 0-0003-019302