Jaðar

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. september 2006 kl. 11:49 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. september 2006 kl. 11:49 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Jaðar

Húsið Jaðar stendur við Vestmannabraut 6. Matthías Finnbogason, járnsmiður, reisti húsið árið 1907. Í kjallara hússins var fyrsta járnsmíðaverkstæði í Vestmannaeyjum og var það notað í allt sem varðaði viðgerðir og til að auka þekkingu vélstjóra í Eyjum.

Eftir Heimaeyjargosið var Jaðar síðasta húsið við hraunkantinn í austurátt á Vestmannabrautinni, og stendur það því í hraunjaðrinum. Ekki langt frá Jaðri var húsið Hraun við Landagötu en það fór einmitt undir hraun.

Árið 2006 búa í húsinu Sigurður Högni Hauksson og Margrét Brandsdóttir.