Júlíana Theodórsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Júlíanna Theodórsdóttir)
Fara í flakk Fara í leit

Júlíana Theodórsdóttir húsfreyja, starfsmaður Hraunbúða fæddist 6. ágúst 1962.
Foreldrar hennar Theodór Snorri Ólafsson vélstjóri, útgerðarmaður, f. 14. maí 1933, d. 16. september 2020, og kona hans Margrét E. Sigurbjörnsdóttir húsfreyja, f. 10. febrúar 1934.

Börn Margrétar og Theodórs:
1. Þorbjörg Theodórsdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 4. júní 1959, kjörbarn þeirra. Maður hennar Haukur Logi Michelsen.
2. Hafþór Theodórsson matsveinn, stýrimaður, f. 6. júlí 1961. Kona hans Hanna R. Björnsdóttir.
3. Sigurbjörn M. Theodórsson vélstjóri, f. 4. júlí 1960, d. 22. júní 2020, ókvæntur.
4. Júlíana Theodórsdóttir húsfreyja, starfsmaður Hraunbúða, f. 6. ágúst 1962. Maður hennar Ingólfur Ingólfsson.
5. Bára Theodórsdóttir sérkennari í Svíþjóð, f. 17. desember 1966. Maður hennar Tommy Westman.
6. Björk Theodórsdóttir viðskiptafræðingur, f. 10. apríl 1971, ógift.
7. Harpa Theodórsdóttir húsfreyja, f. 24. febrúar 1975. Maður hennar Örvar Guðni Arnarson.

Júlíana var með foreldrum sínum í æsku.
Hún varð starfsmaður Hraunbúða.
Þau Ingólfur giftu sig, eignuðust tvö börn.

I. Maður Theodóru er Ingólfur Ingólfsson starfsmaður Fiskistofu, f. 11. september 1955.
Börn þeirra:
1. Margrét Rós Ingólfsdóttir félagsfræðingur, f. 2. júní 1982.
2. Alma Ingólfsdóttir skrifstofustjóri, f. 29. maí 1988.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.