Jórunn Erlendsdóttir (Ólafshúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. ágúst 2015 kl. 21:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. ágúst 2015 kl. 21:45 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jórunn Erlendsdóttir húsfreyja í Ólafshúsum, fæddist 13. júní 1876 á Skíðabakka í A-Landeyjum og lést 28. desember 1963.
Foreldrar hennar voru Erlendur Erlendsson bóndi á Skíðabakka (Austurbænum), A-Landeyjum, f. 7. september 1833, d. 19. nóvember 1904, og k.h. Oddný Árnadóttir húsfreyja, f. 10. október 1839, d. 31. mars 1905.

Jórunn var systir Guðrúnar vinnukonu í Ólafshúsum, f. 1879, og Oddnýjar húsfreyju í Dvergasteini, f. 1883, konu Magnúsar Magnússonar bátasmiðs og bæjarfulltrúa í Dvergasteini.

Maður Jórunnar var Jón Bergur Jónsson sjómaður og útvegsbóndi í Ólafshúsum. Jórunn var síðari kona hans.
Börn þeirra voru
1. Erlendur Oddgeir Jónsson, f. 1908.
2. Elín Jónsdóttir, f. 1910.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimaslóð.is.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.