Jórunn Þórunn Sigurðardóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. október 2022 kl. 17:04 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. október 2022 kl. 17:04 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jórunn Þórunn Sigurðardóttir (Unnur) frá Hafnarnesi við Fáskrúðsfjörð, húsfreyja fæddist 27. október 1925 á Garðsá þar og lést 3. ágúst 1967.
Foreldrar hennar voru Sigurður Karlsson frá Garðsá á Hafnarnesi, f. 29. mars 1904, d. 12. ágúst 1972, og Kristín Sigurðardóttir frá Níelsarbæ á Hafnarnesi, f. 6. október 1906, d. 27. maí 1981.

Börn Kristínar og Sigurðar:
1. María Sigþrúður Sigurðardóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 14. september 1922, d. 4. maí 2005. Maður hennar Magnús Benjamínsson.
2. Karl Emil Sigurðsson vélstjóri, f. 8. janúar 1924, d. 18. nóvember 2010. Kona hans Lilja Finnbogadóttir, látin. Kona hans Helga Þorkelsdóttir.
3. Jórunn Þórunn Sigurðardóttir húsfreyja, f. 27. október 1925, d. 3. ágúst 1967. Maður hennar Ólafur J. Erlendsson.
4. Óskar Sigurðsson, f. 19. maí 1927.
5. Rafn Sigurðsson sjómaður, leigubifreiðastjóri, f. 29. mars 1929, d. 27. ágúst 1988. Fyrrum kona hans Lene Ebbesen. Fyrrum kona hans Fanney Sigurjónsdóttir.
6. Jón Sigurðsson, f. 1. febrúar 1931, d. 4. apríl 1931.
7. Erna Guðmundína Sigurðardóttir húsfreyja, f. 16. maí 1932, d. 6. apríl 2022. Fyrri maður hennar var Björgvin Óskarsson, látinn. Síðari maður hennar Kristinn Jónsson.
8. Ásta Sigurðardóttir húsfreyja, f. 1. ágúst 1933, d. 9. mars 2022. Barnsfaðir hennar Ragnar Runólfsson. Maður hennar Garðar Ásbjörnsson.
9. Oddný Fjóla Sigurðardóttir húsfreyja, f. 13. október 1936. Maður hennar Bernharð Ingimundarson.
10. Valgerður Jóna Sigurðardóttir húsfreyja, f. 15. desember 1942. Maður hennar Rúnar Eiríkur Siggeirsson.
Barnsmóðir Sigurðar var Marta Sveinbjörnsdóttir frá Eyjólfsstöðum í Fossárdal, Berufirði, f. 11. júlí 1908, d. 20. janúar 1999.
Barn þeirra:
11. Ágúst Heiðar Sigurðsson, f. 23. október 1938, d. 24. maí 2008. Kona hans Sigrún Júlíusdóttir.

Jórunn var með foreldrum sínum til 1940, en var í Búðakauptúni 1940 og 1941.
Þau Ólafur giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Landamótum, byggðu Bakkastíg 7 og bjuggu þar.
Jórunn lést 1967 og Ólafur 1974.

I. Maður Jórunnar var Ólafur J. Erlendsson frá Landamótum við Vesturveg 3a, kaupmaður, verkstjóri, síðast í Reykjavík, f. 4. ágúst 1918, d. 11. október 1974.
Börn þeirra:
1. Erlendur Geir Ólafsson netagerðarmaður, síðast í Njarðvíkum, f. 27. ágúst 1945 á Landamótum, d. 16. september 1996. Fyrrum kona hans Guðbjörg Ágústsdóttir. Fyrrum kona hans Jóna Margrét Baldursdóttir.
2. Óskar Ólafsson prentari í Eyjum, f. 20. febrúar 1951 á Bakkastíg 7. Kona hans Jóhanna Ágústsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.