Jón Sigurðsson (Stóra-Gerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. mars 2022 kl. 16:46 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. mars 2022 kl. 16:46 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Sigurðsson frá Gerði, síðar bóndi á Tjörnum u. Eyjafjöllum fæddist 24. mars 1857 í Túni og lést 5. apríl 1932.
Foreldrar hans voru Sigurður Jónsson bóndi, sjómaður, f. 14. mars 1825 í Gularáshjáleigu í A-Landeyjum, fórst með þilskipinu Hansínu í mars 1863, og kona hans Járngerður Sigurðardóttir húsfreyja, f. 17. september 1830 á Borgareyrum u. Eyjafjöllum, d. 23. desember 1876 á Skækli (Guðnastöðum) í A-Landeyjum.

Jón var með foreldrum sínum í bernsku, en hann missti föður sinn, er hann var 6 ára.
Hann fluttist í Landeyjar með móður sinni og systkinum 1864, var niðursetningur í Austurhjáleigu þar 1870, en móðir hans var þar vinnukona.
Jón var vinnumaður í Efri-Rotum u. Vestur-Eyjafjöllum 1880, bóndi í Seljalandsseli þar 1890 með Ólöfu og 4 börnum þeirra, bóndi á Tjörnum þar 1901 með Ólöfu og börnum. Við höfðu bæst Járngerður og Sigurjón, en Guðjón var látinn.
Þau bjuggu enn á Tjörnum 1910. Jón var lausamaður á Búðarhóli í A-Landeyjum 1920, en Ólöf skilin vinnukona á Tjörnum.
Þau Kristbjörg giftu sig, eignuðust ekki börn.
Hann eignaðist barn með Sigrúnu 1884.
Hann eignaðist Árna með Gyðríði 1889.
Jón lést 1932.

I. Kona Jóns, (6. október 1882, skildu), var Ólöf Eyjólfsdóttir húsfreyja, f. 27. nóvember 1852, d. 17. júlí 1930. Foreldrar hennar voru Eyjólfur Egilsson bóndi á Fornusöndum og í Seljalandsseli u. V-Eyjafjöllum, f. í ágúst 1808, (skírður 8. ágúst), d. 27. apríl 1893, og kona hans Anna Jónsdóttir, f. 7. mars 1810, d. 7. mars 1882.
Börn þeirra:
1. Sigurður Jónsson, f. 25. apríl 1882, var á Tjörnum u. V-Eyjafjöllum, d. 6. apríl 1911.
2. Anna Jónsdóttir vinnukona á Tjörnum og í Gerði 1930, f. 15. janúar 1883, d. 15. nóvember 1962.
3. Einar Jónsson bóndi á Tjörnum, f. 11. september 1887 í Seljalandsseli, d. 17. apríl 1967 á Bakka. Barnsmóðir Þorbjörg Sigurðardóttir. Kona hans Kristbjörg Guðmundsdóttir
4. Guðjón Jónsson, f. 15. mars 1890, d. 6. janúar 1891.
5. Járngerður Jónsdóttir vinnukona á Tjörnum 1920, síðar húsfreyja þar, f. 23. desember 1891, d. 31. júlí 1974 í Reykjavík. Maður hennar Haraldur Jónsson Jóngeirssonar.
6. Eyjólfur Jónsson skipstjóri á Suðurnesjum og Akranesi, tvíburi móti Járngerði, f. 23. desember 1891 í Seljalandsseli, d. 21. ágúst 1967. Fyrri kona hans Guðrún Guðnadóttir. Síðari kona Guðrún Bjarnadóttir.
7. Sigurjón Jónsson úrsmiður í Reykjavík, f. 29. janúar 1897 í Seljalandsseli, d. 22. september 1969 í Reykjavík. Kona hans Guðrún Jónsdóttir.

II. Kona Jóns var Kristbjörg Sigurðardóttir, f. 13. apríl 1894 á Lambhúshóli u. Eyjafjöllum, d. 8. nóvember 1980.

III. Barnsmóðir Jóns var Gyðríður Sveinsdóttir frá Helgusöndum u. Eyjafjöllum, síðar í Lambhaga, f. 1. október 1851, d. 29. janúar 1913.
Barn þeirra var
8. Árni Jónsson verkstjóri, verslunarmaður, f. 12. apríl 1889 á Helgusöndum u. Eyjafjöllum, d. 21. júní 1963. Barnsmóðir hans Jórunn Sigríður Magnúsdóttir. Kona hans Soffía Katrín Þorsteinsdóttir.

IV. Barnsmóðir Jóns var Sigrún Sveinsdóttir húsfreyja í Garðhjáleigu í Hvolhreppi, Rang, f. 16. október 1864, d. 27. október 1931.
Barn þeirra:
9. Guðbjörg Jónsdóttir húsfreyja í Efri-Holtum u. Eyjafjöllum, f. 8. júní 1884 í Fljótshlíð, d. 26. maí 1954. Maður hennar Jón Jónasson.

V. Barnsmóðir Jóns var Guðríður Eyjólfsdóttir húsfreyja í Súluholti í Flóa, f. 19. febrúar 1848 á Fornusöndum, d. 31. júlí 1931 í Reykjavík.
Barn þeirra:
10. Eyjólfur Jónsson Eyfells listmálari, f. 6, júní 1886 í Seljalandsseli, d. 3. ágúst 1979 í Reykjavík. Kona hans Pála Ingibjörg Einarsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.