Jón Jónsson Austmann

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. júní 2005 kl. 14:05 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júní 2005 kl. 14:05 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Jónsson Austmann, 1827 til 1858. Hann var sonur séra Jóns Jónssonar prests að Kálfafelli og konu hans Guðnýjar Jónsdóttir prófasts Steingrímssonar að Kirkjubæjarklaustri. Útskrifaðist úr Reykjavíkurskóla 1809. Varð aðstoðarprestur að Sólheimum í Mýrdal, fékk síðan Skúmsstaða- og Stórólfshvolsþing. Hafði brauðaskipti við séra Sigurð Thorarensen prest að Mýrum í Álftaveri og fluttist þangað í fardögum 1817. Fékk veitingu fyrir Ofanleitisprestakall 1827 og hélt því til æviloka 1858. Kona séra Jóns var Þórdís Magnúsdóttir umboðsmanns og Klausturhaldara Andréssonar á Þykkvabæjarklaustri. Áttu þau níu börn og eru nokkrir afkomendur þeirra enn búsettir í Vestmannaeyjum.

Heimildir

  • Eyjar gegnum aldirnar Guðlaugur Gíslason. ISBN 00003556930