Jón Hinriksson kaupfélagsstjóri

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. júní 2013 kl. 18:56 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. júní 2013 kl. 18:56 eftir Víglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Jón

Jón Hinriksson fæddist 23. maí 1881 og lést 15. ágúst 1929. aðeins 48 ára gamall. Eiginkona hans var Ingibjörg Rannveig Theódórsdóttir Mathiesen frá Hafnarfirði. Þau voru foreldrar Hinriks G. Jónssonar.

Jón var kaupfélagsstjóri. Jón sat í fyrstu bæjarstjórn Vestmannaeyja árið 1919 og sat í bæjarstjórn til dauðadags, og sat alls 151 fund. Hann var forstjóri Ísfélags Vestmannaeyja frá 1927 til 1929, eða dauðadags.

Jón átti hlut í bátnum Stakksárfossi ásamt Jónasi Bjarnasyni.

Frekari umfjöllun

Jón Hinriksson kaupfélagsstjóri Kaupfélagsins Fram, bæjarfulltrúi og útgerðarmaður fæddist 23. maí 1881 að Ósum í V-Hún. og lést 15. ágúst 1929.
Faðir hans var Hinrik Guðmundur bóndi og formaður á Kirkjubrú á Álftanesi, f. 31. október 1857, d. 14. nóvember 1885, Jónsson bónda í Bjarnakoti á Álftanesi 1860, f. 1820, Jónssonar bónda á Kornsá í A-Hún. 1816, f. 1755, Jónssonar, og konu Jóns á Kornsá Sigríðar húsfreyju, f. 15. október 1786, d. 17. apríl 1847, Þorláksdóttur.
Móðir Hinriks Guðmundar og kona Jóns í Bjarnakoti var Guðrún húsfreyja, f. 14. júlí 1831, d. 8. febrúar 1898, Hinriksdóttir, og konu Hinriks, Hallvarar húsfreyju, f. 1796, d. 2. júní 1862, Árnadóttur.

Móðir Jóns Hinrikssonar og kona Hinriks Guðmundar var Sigurlaug húsfreyja, f. 28. desember 1851, d. 17. febrúar 1909, Sveinsdóttir bónda á Kúskerpi á Refasveit í A-Hún. (1855) og á Núpi á Laxárdal fremri (1860) í A-Hún., f. 30. ágúst 1817, varð úti 17. desember 1873, Sveinssonar bónda í Kirkjubæ í Norðurárdal í A-Hún., f. 1780, d. 1846, Sigurðssonar, og konu Sveins í Kirkjubæ, Solveigar húsfreyju, f. 18. október 1793, d. 6. mars 1858, Guðlaugsdóttur.
Móðir Sigurlaugar og kona Sveins á Kúskerpi var Þuríður húsfreyja, f. 12. júní 1828, d. 29. mars 1861, Kristjánsdóttir bónda á Síðu í Refasveit, f. 1800, d. 15. janúar 1862, Guðlaugssonar, og fyrri konu Kristjáns á Síðu, Guðrúnar húsfreyju, f. 1. ágúst 1802, d. 14. ágúst 1833, Jónsdóttur.

Kona Jóns Hinrikssonar var Ingibjörg Rannveig Theodórsdóttir Mathiesen húsfreyja og kaupkona, f. 2. ágúst 1880, d. 25. september 1963.
(Sjá frekari umfjöllun um störf Jóns Hinrikssonar í Blik 1974: Samvinnusamtökin í Vestmannaeyjum, V. hluti). Börn Jóns og Ingibjargar hér:
Theodóra Þuríður Jónsdóttir, f. 26. desember 1906, d. 16. maí 1928.
Hinrik Guðmundur Jónsson bæjarstjóri, sýslumaður, f. 2. janúar 1908, d. 19. mars 1965.
Árni Mathiesen Jónsson lögfræðingur, f. 9. október 1909, d. 25. desember 1990.
Lára Jónsdóttir húsfreyja, f. 1. mars 1915, d. 13. júní 1981.
Sigurlaug Jónsdóttir húsfreyja í Geysi, f. 28. janúar 1911, d. 22. september 1997.


Heimildir

Myndir