Jómsborg

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2012 kl. 12:27 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2012 kl. 12:27 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Jómsborg, hið fallega hús.
Ragnheiður Jónsdóttir frá Brautarholti þurrkar saltfisk fyrir utan Jómsborg.

Húsið Jómsborg, einnig Jómaborg, stóð við Víðisveg 9. Það hét áður Ottahús og Beykishús. Jómsborg var reist árið 1912 af Jóni Sighvatssyni og var hið myndarlegasta hús. Sérkennileg turnbygging setti mikinn svip á Jómsborg.

Ólafur Gränz, trésmíðameistari, bjó þar með fjölskyldu sinni. Þegar gaus bjó þar Carl Ólafur Gränz sonur hans, ásamt konu sinni Kolbrúnu Ingólfsdóttur og þrjú börn þeirra.

Nafnið Jómsborg kemur frá borg þar sem norrænir víkingar áttu sér vígi og telja flestir fræðimenn að Jómsborg hafi verið einhvers staðar á eyjunni Wolin, við norðvesturhorn Póllands.

Myndir


Heimildir