Jóhanna Pétursdóttir (Selshjáleigu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. ágúst 2022 kl. 16:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. ágúst 2022 kl. 16:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Jóhanna Pétursdóttir''' frá Selshjáleigu í A.-Landeyjum, húsfreyja fæddist þar 5. september 1922 og lést 8. janúar 1983.<br> Foreldrar hennar voru Pétur Guðmundsson, bóndi í Selshjáleigu, síðar bóndi í Stóru-Hildisey í A.-Landeyjum, f. 15. júní 1893 í Voðmúlastaða-Austurhjáleigu þar, d. 13. febrúar 1959 í Reykjavík, og kona hans Soffía Guðmundsdóttir Ólafssonar húsfreyja, f. 3. júlí 1892 á Reykjum...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Pétursdóttir frá Selshjáleigu í A.-Landeyjum, húsfreyja fæddist þar 5. september 1922 og lést 8. janúar 1983.
Foreldrar hennar voru Pétur Guðmundsson, bóndi í Selshjáleigu, síðar bóndi í Stóru-Hildisey í A.-Landeyjum, f. 15. júní 1893 í Voðmúlastaða-Austurhjáleigu þar, d. 13. febrúar 1959 í Reykjavík, og kona hans Soffía Guðmundsdóttir Ólafssonar húsfreyja, f. 3. júlí 1892 á Reykjum í Mosfellssveit, d. 25. mars 1973 á Selfossi.

Systir Jóhönnu, í Eyjum, var
1. Marta Pétursdóttir húsfreyja, f. 6. apríl 1914, d. 27. ágúst 1989 í St. Marys í New South Wales í Ástralíu. Maður hennar var Jóhannes Albertsson.

Jóhanna var með foreldrum sínum til 1930. Hún var tökubarn í Syðri-Úlfstaðahjáleigu í A.-Landeyjum 1930, síðar fósturdóttir þar.
Hún fór vinnukona að Þrándarholti í Gnúpverjahreppi, Árn. 1938, fór þaðan 1941.
Þau Torfi giftu sig 1950, eignuðust þrjú börn og eitt kjörbarn. Þau bjuggu í Reykjavík í nær 10 ár, en fluttu til Eyja 1955, bjuggu þar á Fífilgötu 5 og við Suðurveg, en fluttu aftur til Reykjavíkur 1971.
Jóhanna lést 1983 og Torfi 1995.

Maður Jóhönnu, (1950), var Torfi Bryngeirsson sjómaður, lögreglumaður, útgerðarmaður, byggingaverktaki, afreksmaður í frjálsum íþróttum, f. 11. nóvember 1926, d. 16. júlí 1995.
Börn þeirra:
1. Ormur Njáll Torfason, kjörbarn, verktaki, aflraunamaður, f. 28. febrúar 1950.
2. Bryndís Torfadóttir sjúkraliði, f. 2. febrúar 1957.
3. Bryngeir Torfason tölvutæknir, f. 22. apríl 1959.
4. Guðmundur Halldór Torfason starfsmaður Íþróttafélagsins Fylkis, knattspyrnumaður, f. 13. desember 1961 í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.