Jóhanna Þorsteinsdóttir (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Jóhanna Þorsteinsdóttir.

Jóhanna Þorsteinsdóttir frá Eystri-Vesturhúsum, húsfreyja, verkakona fæddist 25. mars 1930 í Efri-Vatnahjáleigu í A.-Landeyjum og lést 21. nóvember 2000.
Foreldrar hennar voru Þorsteinn Ólafsson á Vesturhúsum, verkamaður, f. 24. júní 1896 í Dufþalsholti í Hvolhreppi, d. 13. apríl 1967, og kona hans Gíslný Jóhannsdóttir frá Efri-Vatnahjáleigu, húsfreyja, f. þar 3. júlí 1911, d. 14. janúar 1993 í Reykjavík.

Börn Gíslnýju og Þorsteins:
1. Jóhanna húsfreyja að Hilmisgötu 1, síðar iðnverkakona í Innri Njarðvík, f. 25. marz 1930, d. 21. nóvember 2000, gift Jóhannesi P. Sigmarssyni múrara og vélstjóra.
2. Tryggvi kennari í Arendal í Noregi, f. 13. maí 1931, kvæntur Inger Thorsteinsson, fædd Thorvaldsen
3. Ólafía verkakona í Reykjavík, f. 9. nóvember 1933, gift Guðna Þ. Ágústssyni rafeindavirkja. Hún ólst upp hjá föðurbróður sínum Magnúsi Ólafssyni í Hvolhreppi í Rangárvallasýslu.
4. Trausti vélvirki í Kópavogi, f. 14. febr. 1935, kvæntur Önnu Finnsdóttur skrifstofumanni.
5. Halla skólastarfsmaður á Akranesi, f. 7. maí 1936, gift Þórði Þórðarsyni netagerðarmanni.
6. Lilja iðnverkakona í Reykjavík, f. 28. sept. 1937, gift Inga S. Sigmarssyni verzlunarmanni, en hann er bróðir Jóhannesar manns Jóhönnu systur Lilju.
7. Reynir húsgagnabólstrari í Kópavogi, f. 8. nóvember 1938, kvæntur Grétu Jansen skrifstofumanni.
8. Sólveig verzlunarmaður í Reykjavík, f. 26. febrúar 1940, gift Inga B. Guðjónssyni húsasmið.
9. Birgir húsgagnasmiður í Reykjavík, f. 9. marz 1942, kvæntur Sigrúnu Halldórsdóttur kennara.
10. Guðrún húsfreyja í Seattle í Bandaríkjunum, f. 17. maí 1943, fyrr gift Magnúsi Sigurðssyni verkamanni, síðar Richard L. Campbell tölvufræðingi.
11. Jónína iðnverkakona í Kópavegi, f. 23. september 1944, gift Guðjóni Þorbergssyni iðnverkamanni.
12. Smári iðnverkamaður í Reykjavík, f. 18. marz 1946, ókvæntur.
13. Svanur rafeindavirki í Kópavogi, f. 2. október 1947, kvæntur Svanhildi Svansdóttur læknaritara.
14. Sigurvin sjómaður í Eyjum, f. 5. janúar 1950, d. 10. júlí 1980, fórst með v.b. Skuld.
15. Vilborg bóndi á Sléttabóli á Skeiðum, f. 22. nóvember 1951, gift Jóhannesi Eggertssyni bónda.
16. Sigurbjörg húsfreyja, f. 6. febrúar 1953, gift Jóhannesi Ragnarssyni vélstjóra, verkstjóra, innflytjanda.

Jóhanna var með foreldrum sínum, fluti með þeim til Eyja 1934.
Hún var verkakona í Eyjum, síðar iðnverkakona í Ytri-Njarðvík.
Þau Jóhannes giftu sig 1953, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu við Kirkjubæjarbraut 4 og Hilmisgötu 1, fluttu til Ytri-Njarðvíkur og bjuggu þar, síðast á Borgarvegi 20b.

I. Maður Jóhönnu, (29. ágúst 1953), var Jóhannes Pétur Sigmarsson vélstjóri, múrari, f. 9. september 1929, d. 18. desember 2008.
Börn þeirra:
1. Helga Jóhannesdóttir Carrougher sjókona á Stöðvarfirði, f. 14. desember 1950 á Vesturhúsum. Fyrrum maður hennar Guðjón Auðbergsson.
2. Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir atvinnurekandi í Mosfellsbæ, f. 6. desember 1953 á Kirkjubæjarbraut 4.
3. Sigmar Jóhannesson rafeindavirki á Akranesi, f. 5. júlí 1956 á Kirkjubæjarbraut 4. Kona hans Lára Dóra Oddsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vélstjóratal 1911-1972. Óskar Ingimarsson. Reykjavík. Vélstjórafélag Íslands.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.