Jóhann Hlíðar

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. nóvember 2010 kl. 10:58 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. nóvember 2010 kl. 10:58 eftir Inga (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Jóhann Hlíðar í ræðustól.

Séra Jóhann Hlíðar, sóknarprestur, var fæddur á Akureyri þann 25. ágúst 1918 og lést 1. maí 1997 í Reykjavík, 78 ára að aldri. Foreldrar hans voru Sigurður E. Hlíðar alþingismaður og Guðrún Luisa Hlíðar.

Jóhann varð stúdent á Akureyri 1947. Tók guðfræðipróf frá Háskóla Íslands 1946. Stundaði framhaldsnám í kennimannlegri og samstæðilegri guðfræði við Menighedsfakultetet í Osló 1946-1947. Hann kynnti sér unglingafræðslu og störf presta í Stokkhólmi veturinn 1953-1954. Jóhann kynnti sér starf MRA -hreyfingarinnar í Caux í Sviss 1949.

Jóhann var varaþingmaður af lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi. Jóhann sat á Alþingi í apríl 1970.

Hann var ráðinn til starfa hjá Sambandi íslenskra kristniboðsfélaga frá 1. september 1947. Jóhann var kallaður til prédikunarstarfa á vegum þess og vígður prestsvígslu 18. janúar 1948 og gegndi því starfi til 1. október 1953. Síðar settur sóknarprestur í Hvanneyrarprestakalli í Siglufirði 15. júlí 1951 og til 15. september sama ár.

Jóhann var settur aðstoðarprestur í Vestmannaeyjaprestakalli 1954 og seinna meir sóknarprestur þar frá 1956 til 1972. Síðar sóknarprestur í Nesprestakalli í Reykjavík 1972-1975, en gegndi íslenska prestsembættinu í Kaupmannahöfn síðan. Starfaði sem kennari við Menntaskólann á Akureyri 1949-1952 og seinna meir kennari við Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum 1954-1970 og Stýrimannaskólanum í Vestmannaeyjum frá 1967 til 1969.



Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.