Jóhann Þ. Jósefsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. júní 2006 kl. 13:47 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. júní 2006 kl. 13:47 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Jóhann Þ. Jósefsson, kaupmaður og alþingismaður.

Jóhann Þ. Jósefsson, kaupmaður var alþingismaður Vestmannaeyja frá 1923 til 1959. Jóhann Þorkell var fæddur í Vestmannaeyjum þann 17. júní árið 1886 og lést 15. maí 1961 í Hamborg, Þýskalandi. Foreldrar Jóhanns voru Jósef Valdason (f. 6. maí 1848, d. 12. janúar 1887) skipstjóri og Guðrún Þorkelsdóttir (f. 10. janúar 1844, d. 14 október 1919) sjómanns. Jóhann kvæntist fyrst þann 15. október 1915 Svanhvíti dóttur Ólafs Arinbjarnarsonar verslunarstjóra í Borgarnesi, síðar í Vestmannaeyjum og Sigríðar Eyþórsdóttur. Svanhvít var fædd 3. nóvember 1893 og lést aðeins 22 ára gömul, þann 13. ágúst 1916. Seinni eiginkonu sinni kvæntist Jóhann 22. maí 1920. Hún hét Magnea Dagmar Þórðardóttir, sjómannsdóttir úr Reykjavík, og var fædd 10. október 1901.

Störf

Jóhann rak verslun og útgerð í Vestmannaeyjum með Gunnari Ólafssyni kaupmanni og alþingismanni frá 1909 til 1955. Jóhann bjó í Reykjavík frá 1935 og hafði þar umboðsverslun um skeið. Hann var skipaður fjármála- og atvinnumálaráðherra þann 4. febrúar 1947. Hann fékk lausn frá starfi þann 2. nóvember 1949 en gegndi störfum til 6. desember sama ár. Jóhann var skipaður sama dag atvinnumálaráðherra og fékk lausn frá því embætti 2. mars 1950, en gegndi störfum til 14. mars sama ár.

Jóhann var framkvæmdastjóri Samlags skreiðarframleiðenda allt frá stofnun þess 1953 til ársloka 1960. Hann stofnaði Lifrarsamlag Vestmannaeyja ásamt öðrum árið 1933 og einnig Björgunarfélag Vestmannaeyja og átti sæti í stjórn þess frá byrjun. Hann var þýskur vararæðismaður frá 1919.

Nefndastörf

  • Fulltrúi ríkisstjórnarinnar við verslunarsamninga í Þýskalandi frá 1931 til 1935 og síðan 1938-1939.
  • Í stjórn Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda frá stofnun þess.
  • Í Síldarútvegsnefnd um skeið (kosinn af útgerðarmönnum 1938).
  • Formaður nýbyggingarráðs 1944-1947.
  • Í milliþinganefnd í sjávarútvegsmálum 1931 til 1932.
  • Í Landsbankanefnd 1938 til 1944.
  • Fulltrúi á þingi Alþjóðaþingsambandsins í Dublin 1950.
  • Fulltrúi á þingi Evrópuráðs 1950 til æviloka.
  • Fulltrúi á Allsherjaþingi Sameinuðu þjóðanna 1954 og 1955.

Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.