„Jóhann Þ. Jósefsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 2: Lína 2:
[[Mynd:KG-mannamyndir 16336.jpg|thumb|220px|Jóhann og Jón Guðmundsson frá París.]]
[[Mynd:KG-mannamyndir 16336.jpg|thumb|220px|Jóhann og Jón Guðmundsson frá París.]]


'''Jóhann Þ. Jósefsson''' fæddist 17. júní 1886 og lést 15. maí 1961, 74 ára gamall. Foreldrar hans voru [[Jósef Jónsson]] skipstjóri og [[Guðrún Þorkelsdóttir]]. Þ-ið í nafni Jóhanns stendur fyrir Þorkel en Jóhann notaði ávallt skammstöfunina.
'''Jóhann Þ. Jósefsson''' fæddist 17. júní 1886 og lést 15. maí 1961, 74 ára gamall. Foreldrar hans voru [[Jósef Valdason]] skipstjóri og [[Guðrún Þorkelsdóttir]]. Þ-ið í nafni Jóhanns stendur fyrir Þorkel en Jóhann notaði ávallt skammstöfunina.


Jóhann kvæntist [[Magnea Þórðardóttir|Magneu D. Þórðardóttur]] 22. maí 1920 í Reykjavík. Heimili Magneu og Jóhanns í Eyjum var í húsinu [[Fagurlyst-gamla|Fagurlyst]] sem Jóhann hafði látið reisa við Urðarveg. Í Fagurlyst ríkti menningarbragur og var þar gestkvæmt. Magnea og Jóhann eignuðust þrjú börn, Svönu Guðrúnu, Ágústu og Ólaf.
Jóhann kvæntist [[Magnea Þórðardóttir|Magneu D. Þórðardóttur]] 22. maí 1920 í Reykjavík. Heimili Magneu og Jóhanns í Eyjum var í húsinu [[Fagurlyst-gamla|Fagurlyst]] sem Jóhann hafði látið reisa við Urðarveg. Í Fagurlyst ríkti menningarbragur og var þar gestkvæmt. Magnea og Jóhann eignuðust þrjú börn, Svönu Guðrúnu, Ágústu og Ólaf.

Útgáfa síðunnar 31. júlí 2012 kl. 12:09

Jóhann
Jóhann og Jón Guðmundsson frá París.

Jóhann Þ. Jósefsson fæddist 17. júní 1886 og lést 15. maí 1961, 74 ára gamall. Foreldrar hans voru Jósef Valdason skipstjóri og Guðrún Þorkelsdóttir. Þ-ið í nafni Jóhanns stendur fyrir Þorkel en Jóhann notaði ávallt skammstöfunina.

Jóhann kvæntist Magneu D. Þórðardóttur 22. maí 1920 í Reykjavík. Heimili Magneu og Jóhanns í Eyjum var í húsinu Fagurlyst sem Jóhann hafði látið reisa við Urðarveg. Í Fagurlyst ríkti menningarbragur og var þar gestkvæmt. Magnea og Jóhann eignuðust þrjú börn, Svönu Guðrúnu, Ágústu og Ólaf.

Jóhann var fastur þingmaður Vestmannaeyja á tímabilinu 1923-59. Á þessum árum gerði hann fjöldamargt fyrir hag Eyjanna.

Jóhann Þ. rak í félagi við Gunnar Ólafsson fyrirtækið Gunnar Ólafsson & co. og höfðu þeir umsvifamikinn atvinnurekstur bæði í verslun og útgerð. Jóhann var frumkvöðull í atvinnulífi Eyjanna og beitti sér meðal annars fyrir stofnun Björgunarfélags Vestmannaeyja og kaupum á björgunarskipinu Þór, fyrsta varðskipi Íslendinga sem var vísir að Landhelgisgæslunni. Hann var ræðismaður Þýskalands frá 1919 og lengi síðan.

Hann var kjörinn í fyrstu bæjarstjórn Vestmannaeyja 1918 og átti sæti þar næstu tvo áratugi. Hann hlaut kosningu sem þingmaður Eyjamanna 1923 og sat á Alþingi allar götur til 1959. Hann var einn af stofnendum Íhaldsflokksins 1924 og Sjálfstæðisflokksins 1929. Jóhann Þ. var fjármála- og atvinnumálaráðherra í ríkisstjórn Stefáns Jóhanns Stefánssonar 1947-49 og atvinnumálaráðherra í ríkisstjórn Ólafs Thors 1950.

Fjölskyldan fluttist búferlum til Reykjavíkur árið 1935 og bjuggu þau þar á Bergstaðastræti 86. Jóhann Þ. lést í Hamborg í Þýskalandi 15. maí 1961 eftir að hafa veikst skyndilega þegar þau hjónin voru á leið heim af þingi Evrópuráðsins í Strassborg.


Heimildir

  • Magnea Þórðardóttir, aldarminning, í Morgunblaðinu, 10. október 2001.