„Jóhann Þ. Jósefsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
(22 millibreytingar ekki sýndar frá 7 notendum)
Lína 1: Lína 1:
Jóhann Þ. Jósefsson, Kaupmaður. Alþingismaður Vestmannaeyja 1923-1959. Jóhann Þorkell var fæddur í Vestmannaeyjum 17. júní 1886. Dáinn í Hamborg 15. maí 1961. Foreldrar Jósef (fæddur 6. maí 1848, dáinn 12. janúar 1887) skipstjóri þar, kjörsonur Valda bónda í Gerðarkoti undir Eyjafjöllum Ketilssonar og konu hans Guðrúnar (fædd 10. janúar 1844, dáin 14 október 1919) Þorkelsdóttir sjómanns í Vestmannaeyjum Einarssonar. K. 1 (15 október 1915) Svanhvít (fædd 3. nóvember 1893, dáin 13. ágúst 1916) Ólafsdóttir verslunarstjóra í Borgarnesi, síðar í Vestmannaeyjum, Arinbjarnarsonar og konu hans Sigríðar Eyþórsdóttur. — K. 2. (22. maí 1920) Magnea Dagmar (fædd 10. október 1901) Þórðardóttir Helga sjómanns í Reykjavík Þórðarsonar og konu hans Veroniku Einarsdóttur. — Rak versln og útgerð í Vestmannaeyjum í félagið við Gunnar Ólafsson kaupmann og Alþingismann (og fyrst í stað einnig Pétur Thorsteinsson frá Bíldudal) 1909 til 1955. Búsettur í Reykjavík frá 1935 og hafði þar umboðsverslum um skeið. Skipaður 4. febrúar 1947 fjármála- og atvinnumálaráðherra. Lausn 2. nóvember 1949 en gegndi störfum til 6. desember sama ár. Skipaður sama dag atvinnumálaráðherra, lausn 2. mars 1950, en gegndi störfum til 14. mars sama ár. Framkvæmdarstjóri Samlags skreiðarframleiðenda frá stofnun þess 1953 til ársloka 1960. Stofnaði með öðrum Lifrarsamlag Vestmannaeyja 1933 og Björgunarfélag Vestmannaeyja og átti sæti í stjórn þess frá byrjun. Þýskur vararæðismaður frá 1919. Fulltrúi Ríkisstjórnarinnar við verslunarsamninga  í Þýskalandi 1931 til 1935 og 1938 og 1939. Í stjórn Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda frá stofnun þess. Í Síldarútvegsnefnd um skeið (kosinn af útgerðarmönnum 1938). Skipaður formaður nýbyggingarráðs 1944-1947. Í milliþinganefnd í sjávarútvegsmálum 1931 til 1932. Í Landsbankanefnd 1938 til 1944. Fultrúi á þingi Alþjóðaþingsambandsins í Dublin 1950. Fulltrúi á þingi Evrópuráðs 1950 til ævil,oka. Fulltrúi á Allsherjaþingi Sameinuðu þjóðanna 1954 og 1955.
[[Mynd:Jóhann Þ. Jósefsson.jpg|thumb|250px|Jóhann]]
[[Mynd:KG-mannamyndir 16336.jpg|thumb|220px|Jóhann og Jón Guðmundsson frá París.]]
 
'''Jóhann Þ. Jósefsson''' fæddist 17. júní 1886 og lést 15. maí 1961, 74 ára gamall. Foreldrar hans voru [[Jósef Valdason]] skipstjóri og [[Guðrún Þorkelsdóttir (Fagurlyst)|Guðrún Þorkelsdóttir]]. Þ-ið í nafni Jóhanns stendur fyrir Þorkel en Jóhann notaði ávallt skammstöfunina.
 
Fyrri kona Jóhanns var Svanhvít Ólafsdóttir. Þau gengu í hjónaband 15. október 1915. Hún lést tæpu ári síðar, aðeins 22 ára gömul.  
 
Seinni kona Jóhanns var [[Magnea Dagmar Þórðardóttir|Magnea D. Þórðardóttir]]. Þau gengu í hjónaband 22. maí 1920 í Reykjavík. Heimili Magneu og Jóhanns í Eyjum var í húsinu [[Fagurlyst-gamla|Fagurlyst]] sem Jóhann hafði látið reisa við Urðarveg. Í Fagurlyst ríkti menningarbragur og var þar gestkvæmt. Magnea og Jóhann eignuðust þrjú börn, Svönu Guðrúnu, Ágústu og Ólaf.
 
Jóhann var fastur þingmaður Vestmannaeyja á tímabilinu 1923-59. Á þessum árum gerði hann fjöldamargt fyrir hag Eyjanna.  
 
Jóhann rak í félagi við [[Gunnar Ólafsson (kaupmaður)|Gunnar Ólafsson]]
fyrirtækið ''Gunnar Ólafsson & co.'' frá árinu 1910 og höfðu þeir umsvifamikinn atvinnurekstur bæði í verslun og útgerð. Jóhann var frumkvöðull í atvinnulífi Eyjanna og beitti sér meðal annars fyrir stofnun [[Björgunarfélag Vestmannaeyja|Björgunarfélags Vestmannaeyja]] og kaupum á björgunarskipinu Þór, fyrsta varðskipi Íslendinga sem var vísir að Landhelgisgæslunni. Hann var ræðismaður Þýskalands frá 1919 og lengi síðan.
 
Hann var kjörinn í fyrstu bæjarstjórn Vestmannaeyja 1918 og átti sæti þar næstu tvo áratugi. Hann hlaut kosningu sem þingmaður Eyjamanna 1923 og sat á Alþingi allar götur til 1959. Hann var einn af stofnendum Íhaldsflokksins 1924 og Sjálfstæðisflokksins 1929. Jóhann var fjármála- og atvinnumálaráðherra í ríkisstjórn Stefáns Jóhanns Stefánssonar 1947-49 og atvinnumálaráðherra í ríkisstjórn Ólafs Thors 1950.
 
Fjölskyldan fluttist búferlum til Reykjavíkur árið 1935 og bjuggu þau þar á Bergstaðastræti 86. Jóhann lést í Hamborg í Þýskalandi 15. maí 1961 eftir að hafa veikst skyndilega þegar þau hjónin voru á leið heim af þingi Evrópuráðsins í Strassborg.
 
== Tenglar ==
* [http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=1259663&issId=106938&lang=0 Viðtal við Jóhann í ''Morgunblaðinu'' í tilefni af sextugsafmæli sínu]
 
{{Heimildir|
* Magnea Þórðardóttir, aldarminning, í ''Morgunblaðinu'', 10. október 2001.
}}


[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Þingmenn]]
[[Flokkur:Þingmenn]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur:Fólk dáið á 20. öld]]
[[Flokkur:Íbúar við Birkihlíð]]

Núverandi breyting frá og með 17. nóvember 2016 kl. 21:24

Jóhann
Jóhann og Jón Guðmundsson frá París.

Jóhann Þ. Jósefsson fæddist 17. júní 1886 og lést 15. maí 1961, 74 ára gamall. Foreldrar hans voru Jósef Valdason skipstjóri og Guðrún Þorkelsdóttir. Þ-ið í nafni Jóhanns stendur fyrir Þorkel en Jóhann notaði ávallt skammstöfunina.

Fyrri kona Jóhanns var Svanhvít Ólafsdóttir. Þau gengu í hjónaband 15. október 1915. Hún lést tæpu ári síðar, aðeins 22 ára gömul.

Seinni kona Jóhanns var Magnea D. Þórðardóttir. Þau gengu í hjónaband 22. maí 1920 í Reykjavík. Heimili Magneu og Jóhanns í Eyjum var í húsinu Fagurlyst sem Jóhann hafði látið reisa við Urðarveg. Í Fagurlyst ríkti menningarbragur og var þar gestkvæmt. Magnea og Jóhann eignuðust þrjú börn, Svönu Guðrúnu, Ágústu og Ólaf.

Jóhann var fastur þingmaður Vestmannaeyja á tímabilinu 1923-59. Á þessum árum gerði hann fjöldamargt fyrir hag Eyjanna.

Jóhann rak í félagi við Gunnar Ólafsson fyrirtækið Gunnar Ólafsson & co. frá árinu 1910 og höfðu þeir umsvifamikinn atvinnurekstur bæði í verslun og útgerð. Jóhann var frumkvöðull í atvinnulífi Eyjanna og beitti sér meðal annars fyrir stofnun Björgunarfélags Vestmannaeyja og kaupum á björgunarskipinu Þór, fyrsta varðskipi Íslendinga sem var vísir að Landhelgisgæslunni. Hann var ræðismaður Þýskalands frá 1919 og lengi síðan.

Hann var kjörinn í fyrstu bæjarstjórn Vestmannaeyja 1918 og átti sæti þar næstu tvo áratugi. Hann hlaut kosningu sem þingmaður Eyjamanna 1923 og sat á Alþingi allar götur til 1959. Hann var einn af stofnendum Íhaldsflokksins 1924 og Sjálfstæðisflokksins 1929. Jóhann var fjármála- og atvinnumálaráðherra í ríkisstjórn Stefáns Jóhanns Stefánssonar 1947-49 og atvinnumálaráðherra í ríkisstjórn Ólafs Thors 1950.

Fjölskyldan fluttist búferlum til Reykjavíkur árið 1935 og bjuggu þau þar á Bergstaðastræti 86. Jóhann lést í Hamborg í Þýskalandi 15. maí 1961 eftir að hafa veikst skyndilega þegar þau hjónin voru á leið heim af þingi Evrópuráðsins í Strassborg.

Tenglar


Heimildir

  • Magnea Þórðardóttir, aldarminning, í Morgunblaðinu, 10. október 2001.