Jón Þorleifsson (sýslumaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. október 2013 kl. 21:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. október 2013 kl. 21:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Jón Þorleifsson á Jón Þorleifsson (sýslumaður))
Fara í flakk Fara í leit

Jón Þorleifsson var sýslumaður í Vestmannaeyjum á árunum 1801 til 1812. Foreldrar hans voru Þorleifur Nikólásson að Ási í Holtum og kona hans Guðrún Jónsdóttir að Stóra-Núpi, Magnússonar. Fyrri kona Jóns var Þórunn Ólafsdóttir, ekkja Jóns sýslumanns Eiríkssonar og bjuggu þau í Stakkagerði. Síðari kona Jóns var Bóel Jensdóttir í Ámundakoti í Fljótshlíð, Sigurðssonar og bjuggu þau á Oddsstöðum. Börn þeirra, sem upp komust voru Arnfríður sem átti Guðmund Sigurðsson á Oddsstöðum og Þórður, sem dó ókvæntur og barnlaus.

Jón stundaði nám í Skálholtsskóla í tvo vetur og síðar í Reykjavíkurskóla eldri og lauk þaðan stúdentsprófi. Hann fór utan 1793 og var skráður í stúdentatölu við Háskólann í Kaupmannahöfn og lagði þar meðal annars stund á lögfræði en lauk ekki prófi. Hann fékk veitingu fyrir Vestmannaeyjasýslu 1801 og lausn frá embætti á eftirlaunum 1812.

Jón drukknaði við Eyjar nokkru síðar.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.