Ingvar Gunnlaugsson (Gjábakka)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ingvar Gunnlaugsson.

Ingvar Gunnlaugsson frá Gjábakka, sjómaður, vélstjóri, stýrimaður fæddist þar 13. mars 1930 og lést 15. júní 2008 á Selfossi.
Foreldrar hans voru Gunnlaugur Sigurðsson skipstjóri, f. 28. september 1883, d. 20. apríl 1965, og kona hans Jóna Elísabet Arnoddsdóttir húsfreyja, f. 26. ágúst 1889, d. 22. febrúar 1951.

Börn Elísabetar og Gunnlaugs:
1. Aðalsteinn Júlíus Gunnlaugsson skipstjóri, útgerðarmaður, húsvörður, f. 14. júlí 1910 á Gjábakka, d. 27. febrúar 1991.
2. Friðrik Þórarinn Gunnlaugsson vélstjóri, f. 24. júní 1913 á Gjábakka, d. 3. mars 2002.
3. Arnoddur Gunnlaugsson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 25. júní 1917 á Gjábakka, d. 19. október 1995.
4. Sigurbjörg Gunnlaugsdóttir húsfreyja, f. 26. september 1914 á Gjábakka.
5. Guðbjörg Þorsteina Gunnlaugsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 21. apríl 1919 á Gjábakka, d. 1. mars 1983.
6. Jón Gunnlaugsson sjómaður, f. 20. nóvember 1920 á Gjábakka, d. 13. október 2007.
7. Elías Gunnlaugsson skipstjóri, f. 26. febrúar 1922 á Gjábakka.
8. Guðný Gunnlaugsdóttir, húsfreyja, kennari, f. 6. mars 1928 á Gjábakka.
9. Ingvar Gunnlaugsson sjómaður, vélstjóri, stýrimaður, verslunarstarfsmaður, f. 13. mars 1930 á Gjábakka, d. 15. júní 2008.
Barn Gunnlaugs með Elínu Pálsdóttur Scheving:
10. Gunnlaugur Gunnlaugsson Scheving bifreiðastjóri, f. 13. október 1906, síðast á Selfossi, d. 7. júní 1992.
Barn Gunnlaugs með Elínu Guðmundsdóttur:

Ingvar var með foreldrum sínum í æsku.
Hann öðlaðist vélstjóra og stýrimannsréttindi.
Hann varð sjómaður 15 ára, reri á ýmsum bátum og togurum, en lengst var hann vélstjóri og stýrimaður á Suðurey VE-20. Eftir flutning til Selfoss vann Ingvar hjá Kaupfélagi Árnesinga og við Sundhöllina á Selfossi.
Þau Helga giftu sig 1955, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu í fyrstu við Austurveg 22, síðar á Sælundi við Vesturveg 2 og við Bakkastíg 21 við Gos 1973, en síðast í Heimahaga 12 á Selfossi.
Ingvar lést 2008.

I. Kona Ingvars, (25. desember 1955), er Ingibjörg Helga Guðmundsdóttir frá Hurðarbaki í Flóa, húsfreyja, f. þar 3. október 1933.
Börn þeirra:
1. Elísabet Ingvarsdóttir, f. 7. október 1956. Maður hennar Guðmundur Þórarinn Óskarsson.
2. Guðmundur Kristinn Ingvarsson, f. 16. maí 1959. Kona hans Elínborg Gunnarsdóttir.
3. Þröstur Ingvarsson, f. 12. febrúar 1963. Kona hans Guðbjörg Hrefna Bjarnadóttir.
4. Svanur Ingvarsson, f. 12. febrúar 1963. Kona hans María Óladóttir.
5. Þuríður Ingvarsdóttir, f. 19. janúar 1972. Sambúðarmaður hennar Einar Guðmundsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.