Ingunn Lísa Jóhannesdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ingunn Lísa Jóhannesdóttir frá Knarrarhöfn við Fífilgötu 8, húsfreyja, starfsmaður í þvottahúsi fæddist 9. október 1961.
Foreldrar hennar voru Jóhannes Tómasson frá Höfn, bankastarfsmaður, aðstoðarútibússtjóri, f. 13. mars 1921, d. 18. júlí 2015, og kona hans Guðfinna Stefánsdóttir frá Skuld, húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 8. júní 1923, d. 10. október 2019.

Börn Guðfinnu og Jóhannesar:
1. Margrét Rósa Jóhannesdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 23. mars 1948. Maður hennar Gylfi Tryggvason.
2. Erna Jóhannesdóttir kennari, íþróttakennari, fræðslufulltrúi, f. 6. júlí 1950. Maður hennar Egill Egilsson.
3. Tómas Jóhannesson gjaldkeri, f. 2. mars 1956. Kona hans Fanney Björk Ásbjörnsdóttir.
4. Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra, f. 4. janúar 1959. Kona hans Halldóra M. Hermannsdóttir.
5. Ingunn Lísa Jóhannesdóttir húsfreyja, starfsmaður í þvottahúsi, f. 9. október 1961. Maður hennar Valtýr Þór Valtýsson, látinn. Sambúðarmaður hennar Sveinbjörn Guðmundsson.
6. Iðunn Dísa Jóhannesdóttir húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, f. 9. október 1961. Maður hennar Ágúst Einarsson.

Ingunn Lísa var með foreldrum sínum í æsku.
Hún hefur unnið í Straumi við þvotta.
Þau Valtýr giftu sig 1983, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu við Búhamar 44.
Valtýr lést 2002.
Þau Sveinbjörn hófu sambúð, eiga ekki börn saman.

I. Maður Ingunnar Lísu, (23. júlí 1983), var Valtýr Þór Valtýsson húsasmiður, kaupmaður, f. 25. maí 1955, d. 1. desember 2002.
Börn þeirra:
1. Valur Valtýsson sjómaður í Hafnarfirði, f. 21. maí 1983. Unnusta hans er Anna Lind Pálmadóttir.
2. Erna Valtýsdóttir kennari í Eyjum, f. 9. febrúar 1990. Maður hennar Valtýr Bjarnason.
3. Aron Valtýsson sjómaður í Hveragerði, f. 26. mars 1996. Sambúðarkona hans Rakel Rós Friðriksdóttir.

II. Sambúðarmaður Ingunnar Lísu er Sveinbjörn Guðmundsson starfsmaður Íþróttamiðstöðvarinnar, f. 12. apríl 1967.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Ingunn Lísa.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 7. desember 2002. Minning Valtýs Þórs.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.