Ingibjörg Ólafsdóttir (Bólstaðarhlíð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. október 2021 kl. 10:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. október 2021 kl. 10:41 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Perla, Kristín, Sigríður, Jón, Sigfríður, Halldóra. Neðriröð: Bjarni Ólafur, Björn, Ingibjörg, Soffía

.

Ingibjörg Ólafsdóttir var fædd 12. apríl árið 1895 í Dalseli undir Eyjafjöllum og lést 2. júní 1976. Hún var dóttir Ólafs Ólafssonar f. 6. júlí 1856 og Sigríðar Ólafsdóttur f. 9. sept. 1859 frá Eyvindarholti.

Ingibjörg ólst upp í Eyvindarholti u. Eyjafjöllum, giftist 12. júní 1921 Birni Bjarnasyni f. 3. mars 1893 d. 25. sept. 1947 og bjuggu þau í Bólstaðarhlíð við Heimagötu 39 í Vestmannaeyjum.
Ingibjörg var gædd mikilli frásagnargáfu og skrifaði hún margar greinar í Blik og fleiri blöð í Vestmannaeyjum.
Ingibjörg ræktaði líka upp einn fallegasta garð sem í Vestmannaeyjum hefur verið, við heimili sitt í Bólstaðarhlíð.

Ingibjörg og Björn eignuðust átta börn:
1. Halldóra Kristín Björnsdóttir, f. 3. apríl 1922, d. 13. október 2021.
2. Sigríður Björnsdóttir, f. 8. apríl 1923, d. 30. júlí 2019.
3. Jón Björnsson, f. 17. júní 1924, d. 4. september 2012.
4. Kristín Björnsdóttir, f. 22. maí 1925.
5. Sigfríður Björnsdóttir, f. 11. sept. 1926. d. 30 júní 2007.
6. Perla Björnsdóttir, f. 11. ágúst 1928.
7. Soffía Björnsdóttir, f. 13. ágúst 1933.
8. Bjarni Ólafur Björnsson, f. 9. maí 1935. d. 4. júní 1959, hrapaði í Bjarnarey í Vestmannaeyjum.

Björn og Ingibjörg með börn sín Sigríði, Kristínu, Jón og Halldóru
Björn, Ingibjörg og börn fr.v. Sigríður, Fríða, Kristín, Halldóra, Soffía og Jón fr. aftan
Fr.v. Sigríður, Jón og Halldóra og fremri röð Fr.v. Kristín, Soffía, Bjarni Ólafur, Perla og Fríða
Garðurinn sem Ingibjörg ræktaði

Ingibjörg ræktaði líka upp einn fallegasta garð sem í Vestmannaeyjum hefur verið, við heimili sitt í Bólstaðarhlíð.