Ingibjörg Ágústa Björnsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. apríl 2019 kl. 11:23 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. apríl 2019 kl. 11:23 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Jón Runólfsson og Ingibjörg Ágústa Björnsdóttir.

Ingibjörg Ágústa Björnsdóttir húsfreyja í Bræðratungu og að Heimagötu 24 fæddist 19. október 1926 í Valhöll og lést 31. mars 2019.
Foreldrar hennar voru Einar Björn Sigurðsson frá Pétursborg, f. 25. október 1895, d. 14. nóvember 1964 og kona hans Ingveldur Jónsdóttir húsfreyja, f. 3. maí 1904, d. 23. júní 1994.

Ingibjörg Ágústa var með foreldrum sínum í æsku, í Valhöll, síðan í Pétursborg.
Þau Jón giftu sig 1945, eignuðust fimm börn, en misstu eitt þeirra á fyrsta ári þess.
Þau bjuggu í fyrstu á Heiðarvegi 30, en fluttust að Bræðratungu 1947, er móðir Jóns lést. Þau byggðu hús að Heimagötu 24 og bjuggu þar til Goss.
Við Gosið fluttust þau til Reykjavíkur, bjuggu í Espigerði 4. Þar bjuggu þau, uns þau fluttust á Hjúkrunarheimilið Mörk, Ágústa 2017 og Jón 2018.
Þau hjón létust bæði í mars 2019 með þriggja daga bili.

Maður Ingibjargar Ágústu, (6. janúar 1945), var Jón Runólfsson vélvirkjameistari frá Bræðratungu, f. 29. nóvember 1924, d. 28. mars 2019.
Börn þeirra eru:
1. Ragnhildur Jónsdóttir húsfreyja á Dalvík, f. 19. október 1944, d. 14. febrúar 2013. Maður hennar var Bragi Jónsson smiður.
2. Unnur Jónsdóttir húsfreyja og bóndi í Kjós, f. 26. maí 1949. Maður hennar var Bjarni Kristjánsson bóndi.
3. Inga Jónsdóttir húsfreyja, f. 24. mars 1951. Maður hennar er Friðfinnur Finnbogason kaupmaður.
4. Jón Ágúst Jónsson, f. 29. september 1952, d. 6. febrúar 1953.
5. Jón Ágúst Jónsson smiður á Selfossi, f. 4. mars 1955. Kona hans er Margrét Jónsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.