Ingólfur Grétarsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ingólfur Grétarsson.

Ingólfur Grétarsson frá Bessastíg 8, sjómaður, stýrimaður fæddist þar 7. september 1950.
Foreldrar hans Grétar Skaftason frá Suður-Fossi í Mýrdal, sjómaður, skipstjóri, f. 26. október 1926, fórst 5. nóvember 1968, og kona hans Kristbjörg Ingileif Sigurjónsdóttir húsfreyja, ræstitæknir, f. 11. desember 1931.

Börn Kristbjargar og Grétars:
1. Ingólfur Grétarsson stýrimaður, f. 7. september 1950 á Bessastíg 8. Fyrrum kona hans Ásta Finnbogadóttir.
2. Sigurjón Ragnar Grétarsson stýrimaður, skipstjóri, rafeindavirki, f. 21. október 1954 á Vallargötu 4. Kona hans Þórgunnur Hjaltadóttir.
3. Ófeigur Grétarsson rafeindavirki, f. 11. október 1962 að Vallargötu 4. Kona hans Ragnheiður Þorvaldsdóttir, látin.
4. Gréta Hólmfríður Grétarsdóttir kaupmaður, sjúkraliði, f. 4. febrúar 1969. Maður hennar Heiðar Hinriksson.

Ingólfur lauk gagnfræðaprófi, og I. og II. stigi í Stýrimannaskólanum í Eyjum.
Hann var sjómaður frá 14 ára aldri á mb. Mars VE 204 og stundaði sjóinn í 4 ár, en þurfti að hætta um skeið vegna slyss á mb. Gideon 1968. Hann fór síðan í Stýrimannaskólann og varð stýrimaður á ýmsum skipum, m.a. á Kap II VE 4.
Þau Ásta giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau bjuggu við Höfðaveg 4, síðar við Höfðaveg 43.

I. Kona Ingólfs er Ásta Finnbogadóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 31. mars 1953.
Barn þeirra:
1. Kristjana Ingólfsdóttir, f. 14. september 1973.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.