Illugi Jónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júní 2005 kl. 10:57 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júní 2005 kl. 10:57 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Illugi Jónsson, 1734 til 1744. Foreldrar: Séra Jón Ólafsson að Fellsmúla og kona hans Margrét Jónsdóttir prests að Fellsmúla, Jónssonar. Stúdent frá Skálholtsskóla 1715, vígðist sama ár aðstoðaprestur séra Einars Magnússonar í Holtþingum, fékk Mosfell í Grímsnesi 1719 og Ofanleiti 1734 og þjónaði því prestakalli til 1745, er hann fékk veitingu fyrir Ólafsvöllum og varð prófastur í Árnesþingum. Kona hans var Sigríður Fransdóttir, prests í Hruna, Ibssonar, og áttu þau sjö börn.