Hnísa

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. júní 2007 kl. 15:26 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júní 2007 kl. 15:26 eftir Dadi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
  • Lengd: 1,5–2 metrar.
  • Þyngd: 55–70 kíló.
  • Alheimsstofnstærð: Óþekkt .
  • Lífslíkur: Um 30 ár.
  • Fæða: Helsta fæða þessara hvala eru ýmsir smáfiskar, síli, loðna og síld. Þær reyna stundum að næla sér í fisk sem fastur er í netum og gjalda oft fyrir það með lífi sínu. Talsvert er um það að hnísur festist í veiðarfærum og drepist.

Hnísa er minnsta hvalategundin hér við land en þó afar algeng. Stofninn er líklega um 25–27 þúsund dýr. Hnísur fara oft saman í hópum þó svo að stundum megi rekast á stök dýr. Hnísur er helst að finna inni á fjörðum og flóum enda kunna þær best við sig á grunnsævi. Hnísur eru tannhvalir eins og höfrungar en tilheyra sérstakri ættkvísl.

Erfitt er að koma auga á þessi smáhveli. Oft sést litlum bakugga bregða fyrir örskotsstund en svo tekur hnísan á rás og er horfin eins og hendi sé veifað. Í hvalaskoðunarferðum er algengt að sjá hnísuhópa fara með bægslagangi. Þær forðast yfirleitt skip og báta þótt stundum nálgist þær hvalaskoðunarbáta með litlu afkvæmin sín.


Heimildir

  • www.nordursigling.is