Hlíðarhús

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. febrúar 2013 kl. 17:26 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. febrúar 2013 kl. 17:26 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Hlíðarhús
Hlíðarhús fremst, þá talið frá vinstri: Strönd Veggur Hruni, Bjarmi, Hóll, London og Þingvellir.
Frá vinstri Strönd, Hruni, Veggur, Hóll, London, og fremst er Hlíðarhús.
Jóhann Gíslason
Sigríður Bergsdóttir

Húsið Hlíðarhús var rifið 1978 og stóð við Miðstræti 5b. Fyrra nafn hússins var Jónshús síðar var húsið kallað Hóll en síðar reisti sr. Jes A. Gíslason hús undir því heiti við Miðstræti.

Um 1880 byrjuðu Eyjamenn sjálfir að panta vörur erlendis frá og mynduðu með sér félagsskap. Mjög lítið varð samt úr framkvæmdum vegna mótspyrnu kaupmanna. Gísli Stefánsson í Hlíðarhúsi, Ólafssonar stúdents í Selkoti, byrjaði verslunarútsölu i Hlíðarhúsi, íbúðahúsi sínu, fyrir Þorlák Ó Johnson kaupmann í Reykjavik, en frá 1885 rak Gísli verslun sjálfur. Sigldi hann utan og keypti vörur. Með þessari verslunarstofnun, er að vísu var smáverslun, var athyglisvert spor stigið í viðreisnaráttina. Gísli hafði áður veitt kaupfélagsskapnum forstöðu. Eftir dauða Gísla Stefánssonar 1904 lagðist verslun hans alveg niður, er var svipuð og borgaraverslanir þær, er um þessar mundir risu upp víðar. Eigi sést að verslunarleyfisbréf eða borgarabréf hafi verið gefið út.

Í Hlíðarhúsi var síðan eftir 1904 tekið á móti erlendum sjúklingum um nokkur ár hjá frú Soffíu Andersdóttur konu Gísla Stefánssonar. En nú var komið hér sjúkrahús, Frakkneska sjúkrahúsið, er þó eigi var tekið til almennrar notkunar fyrr en seinna.



Heimildir

  • Sigfús M. Johnsen. Saga Vestmannaeyja, I. og II. bindi. Reykjavík: Fjölsýn forlag, 1989.
  • Myndin er úr myndasafni Þóris Óskarssonar er frá um 1920.

Fjölskyldan í Hlíðarhúsi um 1895. Friðrik Gísli Gíslason tók myndina.
Skýring við fjölskyldumynd frá Hlíðarhúsi samkv. Þóri Óskarssyni, Kárasonar og Jes Einari Þorsteinssyni, Einarssonar.
Fremsta röð frá vinstri: Friðrik Gísli ljósmyndari, f. 1870, d. 1906, Gísli Stefánsson kaupmaður, húsbóndi, f. 1842, d. 1903, heldur á (líklega) Rebekku, sem dó 3-4 ára, Soffía Lísbet húsfreyja, f. 1847, d. 1936, heldur á Kristjáni sjómanni, f. 1891, d. 1948.
Miðröð frá vinstri: Anna Ásdís, síðar Johnsen, húsfreyja, f. 1878, d. 1945, Guðbjörg Jónína, síðar Petersen og síðast kona Sæmundar Jónssonar, húsfreyja, f. 1880, d. 1969, Jóhann sjómaður og verkamaður, f. 1883, d. 1944 og Lárus ljósmyndari, f. 1885, d. 1950.
Aftasta röð frá vinstri: Ágúst útvegsbóndi, f. 1874, d. 1922, Jes Anders á Hól, prestur, verzlunarstjóri, kennari, bókasafnsvörður, f. 1872, d. 1961 og Stefán útvegsbóndi og veitingamaður á Sigríðarstöðum, f. 1876, d. 1953.