„Hellisey“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
(7 millibreytingar ekki sýndar frá 2 notendum)
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Hellis2a.jpg|thumb|250px|left|Hellisey í Vestmannaeyjum]]
{{Eyjur}}
{{Eyjur}}
[[Mynd:Hellis2a.jpg|thumb|300px|right|Hellisey í Vestmannaeyjum]]
'''Hellisey''' liggur 3 km sunnan við [[Brandur|Brand]] og eru eyjarnar tvær líkar að lögun og stærð. Eyjan snýr þverhníptum hömrum sínum í vestur, norður og austur og er mesta hæð um 105 metrar. Veiðikofi Helliseyinga var endurgerður 1968 og er staðsettur norðan megin á eyjunni. Vegna mikils halla í brekkum er lundabyggð mjög þétt í eyjunni og sums staðar kemur það niður á gróðurlendi.  Gróður hefur einnig orðið fyrir tjóni vegna stækkandi varplands súlu. Hellisey er á lista yfir svæði á  náttúruverndaráætlun. [[Súla|Súluveiði]], [[Lundi|lundaveiði]] og [[eggjataka]] er stunduð í Hellisey og [[sauðfé]] haft á beit.


'''Hellisey''' liggur 3 km sunnan við [[Brandur|Brand]] og eru eyjarnar tvær líkar að lögun og stærð. Eyjan snýr þverhníptum hömrum sínum í vestur, norður og austur og er mesta hæð um 105 metrar. Veiðkofi Helliseyinga var endurgerður 1968 og er staðsettur norðan megin á eyjunni. Vegna mikils halla í brekkum er lundabyggð mjög þétt í eyjunni og sumstaðar kemur það niður á gróðurlendi.  Gróður hefur einnig orðið fyrir tjóni vegna stækkandi varplands súlu. Hellisey er á lista yfir svæði á  náttúruverndaráætlun. [[Súla|Súluveiði]], [[Lundi|lundaveiði]] og [[eggjataka]] er stunduð í Hellisey og [[sauðfé]] haft á beit.
[[Mynd:Súla.jpg|thumb|300px|right|Súlur í Hellisey]]
 
Mikil súlnabreiða sem heitir [[Flagtir]] er norðvestan í eyjunni. Austan í Hellisey eru [[Stórhellar]] og þar var ein mesta súlubyggð í bergi í Vestmanneyjum.
[[Mynd:Súla.jpg|thumb|right|Súlur í Hellisey]]Mikil súlnabreiða sem heitir [[Flagtir]] er norðvestan í eyjunni. Austan í Hellisey eru [[Stórhellar]] og þar var ein mesta súlubyggð í bergi í Vestmanneyjum.


Austan í eyjunni niður af [[Hánef]]i er [[Sámur]] sem er mikið og skemmtilegt fýlapláss. Þar eru 400 - 600 fýlar. Fýll sat þar svo fast að gamalt orðtak var, að jafnöruggt væri að eiga fýlinn í Sám eins og saltaðan í kagga. Hægt er að komast í Sám af sjó eftir tæpum vegi og til halds og trausts voru þrír bergboltar.
Austan í eyjunni niður af [[Hánef]]i er [[Sámur]] sem er mikið og skemmtilegt fýlapláss. Þar eru 400 - 600 fýlar. Fýll sat þar svo fast að gamalt orðtak var, að jafnöruggt væri að eiga fýlinn í Sám eins og saltaðan í kagga. Hægt er að komast í Sám af sjó eftir tæpum vegi og til halds og trausts voru þrír bergboltar.
Lína 15: Lína 15:
:Hábrandinn ei hræðist ég,
:Hábrandinn ei hræðist ég,
:en Hellisey er ógurleg.  
:en Hellisey er ógurleg.  
==Úr örnefnaskrá [[Gísli Lárusson|Gísla Lárussonar]]==
[[Mynd:IMG 3043a.jpg|thumb|300px|right|Hellisey]]
IV. '''Hellirsey'''  liggur suður af Suðurey ca ½ mílu. Er hún einkennileg í lögun, myndar hálfhring. Svo að austan megin við hana myndast stór hvilft, '''Pollur''' . Sunnan við miðju er hún nefnd '''Lágey''' , er hún þar mjög lág, svo að sjór gengur þar yfir í miklu brimi. Er syðst á eynni nefndur '''Höfði''' , grasivaxin hæð að ofan og þar á mikil fýlatekja. Er í Höfðanum að vestanverðu uppganga í bergið af sjó nefnd '''Göngur''' . Hér upp af og norður af er töluverð súlnatekja. Þar fyrir norðan við brún uppi er fýlabekkur, '''Vesturflaktir''' , en þar niður af litlu sunnar er annar súlnabekkur, '''Langibekkur'''.
Þar norður af í miðju bergi er hellir stór, '''Sóttarhellir''' . Þegar kemur austur fyrir Vesturflaktir er eyjan grasivaxin, dálítið sléttlendi, nefnd '''Flöt''' . En upp af henni er eyjan hæst og er þar nefnt '''Hánef''' . Fyrir neðan það og norður úr eynni er allhár hryggur, '''[[Sámur]]''' , og fremsta nefið á hrygg þessum '''Sámsnef''' ; er þar allmikil fuglatekja, svartfugl, súla og fýll. En upp af Sám, en niður af Hánefi er allstórt súlnabæli , '''Sámsbæli'''  og má komast upp í Sám og upp úr honum í bæli þetta frá sjó, bandlaus; liggur þó bælið ca 50-60 faðma uppi.
Hér fyrir sunnan eru hinir nafnkunnu '''Stórhellrar''' , erfiðustu bjargsig í Vestmannaeyjum, og er í þeim eingöngu súlnatekja. Er Hellirsey enn í dag skipt að súlnatekju, eins og áður var; á vestursókn (Ofanleitissókn) eyjuna að vestan, en austursókn (Kirkjubæjarsókn) að austan Stórhellra. Fyrir sunnan Stórhellra eru '''Austurflaktir'''.


{{Heimildir|
{{Heimildir|
* Aðalskipulag Vestmannaeyja 2002-2014.
* Aðalskipulag Vestmannaeyja 2002-2014.
}}
* [[Gísli Lárusson]]. ''Örnefni á Vestmannaeyjum''. [http://www.ornefni.is Örnefnastofnun Íslands], 1914.}}
 
[[Flokkur:Örnefni]]
[[Flokkur:Eyjur]]

Núverandi breyting frá og með 25. ágúst 2006 kl. 09:04

Hellisey í Vestmannaeyjum

Hellisey liggur 3 km sunnan við Brand og eru eyjarnar tvær líkar að lögun og stærð. Eyjan snýr þverhníptum hömrum sínum í vestur, norður og austur og er mesta hæð um 105 metrar. Veiðikofi Helliseyinga var endurgerður 1968 og er staðsettur norðan megin á eyjunni. Vegna mikils halla í brekkum er lundabyggð mjög þétt í eyjunni og sums staðar kemur það niður á gróðurlendi. Gróður hefur einnig orðið fyrir tjóni vegna stækkandi varplands súlu. Hellisey er á lista yfir svæði á náttúruverndaráætlun. Súluveiði, lundaveiði og eggjataka er stunduð í Hellisey og sauðfé haft á beit.

Súlur í Hellisey

Mikil súlnabreiða sem heitir Flagtir er norðvestan í eyjunni. Austan í Hellisey eru Stórhellar og þar var ein mesta súlubyggð í bergi í Vestmanneyjum.

Austan í eyjunni niður af Hánefi er Sámur sem er mikið og skemmtilegt fýlapláss. Þar eru 400 - 600 fýlar. Fýll sat þar svo fast að gamalt orðtak var, að jafnöruggt væri að eiga fýlinn í Sám eins og saltaðan í kagga. Hægt er að komast í Sám af sjó eftir tæpum vegi og til halds og trausts voru þrír bergboltar. Mynd:Hellisey-kort.PNG

Helliseyjarvísan

Sumir segja að Þórð Geirmundsson hafi dreymt vísu eftir að hann hafi verið beðinn um að síga Stóruhellana í Hellisey. Aðrir segja að Jón dynkur hafi ort hana.

Hörð eru sig í Háubæli og hættuleg,
Hábrandinn ei hræðist ég,
en Hellisey er ógurleg.

Úr örnefnaskrá Gísla Lárussonar

Hellisey

IV. Hellirsey liggur suður af Suðurey ca ½ mílu. Er hún einkennileg í lögun, myndar hálfhring. Svo að austan megin við hana myndast stór hvilft, Pollur . Sunnan við miðju er hún nefnd Lágey , er hún þar mjög lág, svo að sjór gengur þar yfir í miklu brimi. Er syðst á eynni nefndur Höfði , grasivaxin hæð að ofan og þar á mikil fýlatekja. Er í Höfðanum að vestanverðu uppganga í bergið af sjó nefnd Göngur . Hér upp af og norður af er töluverð súlnatekja. Þar fyrir norðan við brún uppi er fýlabekkur, Vesturflaktir , en þar niður af litlu sunnar er annar súlnabekkur, Langibekkur.

Þar norður af í miðju bergi er hellir stór, Sóttarhellir . Þegar kemur austur fyrir Vesturflaktir er eyjan grasivaxin, dálítið sléttlendi, nefnd Flöt . En upp af henni er eyjan hæst og er þar nefnt Hánef . Fyrir neðan það og norður úr eynni er allhár hryggur, Sámur , og fremsta nefið á hrygg þessum Sámsnef ; er þar allmikil fuglatekja, svartfugl, súla og fýll. En upp af Sám, en niður af Hánefi er allstórt súlnabæli , Sámsbæli og má komast upp í Sám og upp úr honum í bæli þetta frá sjó, bandlaus; liggur þó bælið ca 50-60 faðma uppi.

Hér fyrir sunnan eru hinir nafnkunnu Stórhellrar , erfiðustu bjargsig í Vestmannaeyjum, og er í þeim eingöngu súlnatekja. Er Hellirsey enn í dag skipt að súlnatekju, eins og áður var; á vestursókn (Ofanleitissókn) eyjuna að vestan, en austursókn (Kirkjubæjarsókn) að austan Stórhellra. Fyrir sunnan Stórhellra eru Austurflaktir.



Heimildir