Helgafellsvöllur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. júní 2006 kl. 09:13 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júní 2006 kl. 09:13 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þessi knattspyrnuvöllur, við rætur Helgafells að vestan, varð til vegna vikurhreinsunar í Helgafelli. Vikrinum var rutt niður til vesturs, jafnað úr honum og þannig myndaðist hið ágætasta vallarstæði. Mold var síðan sett ofan á vikurinn og grasfræi sáð í hana. Grasvöllurinn var formlega tekinn í notkun árið 1978 og hefur aðallega verið notaður sem æfingavöllur auk þess sem hann hefur verið heimavöllur KFS, Knattspyrnufélagsins Framherja Smástundar.