Helgafell

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júlí 2005 kl. 12:53 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júlí 2005 kl. 12:53 eftir Smari (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Einnig eru til tvö hús sem heita Helgafell.


Sólu roðið sumarský, svífur yfir Helgafelli“.

Þannig orti Sigurbjörn Sveinsson í þjóðsöng Vestmannaeyinga, „Yndislega eyjan mín“. Helgafell gaus síðast fyrir um fimm þúsund árum, fullvíst er talið, að gos úr fellinu hafi tengt saman Norðurklettana, Dalfjall og Stórhöfða og myndað Heimaey eins og við þekkjum hana í dag. Kaupstaðurinn stendur allur á Helgafellshrauni, sem ber þó mörg nöfn, t.d. Agðahraun og Strembuhraun.

Nafngift Helgafells er sögð vera sú að Írskur þræll að nafni Helgi, sem hafði flúið eftir morðið á Hjörleifi, hafi verið drepinn þar af Ingólfi Arnarsyni og hans mönnum. Það er algengur misskilningur að það sé eitthvað heilagt við Helgafell.