„Helga Helgadóttir (Steinmóðshúsi)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip

Lína 7: Lína 7:
Hún giftist Jóni Steinmóðssyni 1856 og bjó í fyrstu hjá tengdamóður sinni, búandi í [[Fjós]]i 1865-1868, á [[Hóllinn|Hólnum]] 1869 með Jóni og Jóhanni, en í Steinmóðshúsi 1870-1873 með Jóhanni og Kristínu og 1874 með sömu áhöfn.

Þau eignuðust fyrsta barn sitt 1856 og misstu það vikugamalt úr ginklofa. Sigríður fæddist 1858 og dó skyndilega þriggja mánaða gömul. Jón fæddist 1859 og dó fjögurra mánaða gamall úr umgangsveiki. Jóhann fæddist 1862. Hann var með þeim í æsku, var um skeið í sveit í Skarðshlíð u. Eyjafjöllum, síðar sjómaður á þilskipinu [[Jósefína, þilskip|Jósefínu]] og fórst með henni 26 ára gamall 1888. Ólafur fæddist 1868 og dó á fyrsta ári sínu úr uppdráttarveiki.

Tvö börn þeirra lifðu til elliár, Kristín húsfreyja, sem fæddist 1873, bjó á Seyðisfirði og Friðrik  verkamaður, sem lifði að dvelja á [[Elliheimilið Skálholt|Elliheimilinu]] í [[Skálholt-yngra|Skálholti]].

Tvö börn þeirra lifðu til elliár, Kristín húsfreyja, sem fæddist 1873, bjó á Seyðisfirði og Friðrik  verkamaður, sem lifði að dvelja á [[Skálholt-yngra|Elliheimilinu]] í [[Skálholt-yngra|Skálholti]].

1875 voru þau Jón í [[Hólshús]]i með Jóhann og Kristínu, og þar var einnig Elín tengdamóðir hennar 84 ára og Elín mágkona  hennar með börn sín Friðriku Matthildi og Kristján. Þessi fjölskylda var þar einnig 1876. 1877 voru þau þar með Jóhann og Kristínu, Elínu móður Jóns og Elínu systur hans.

1878 og 1879  var Jón vinnumaður á [[Gjábakki|Gjábakka]] og Helga á hinu býlinu þar, 1878 með Kristínu með sér, 1879 með Friðrik með sér, en 1879 fór Jóhann léttadrengur að Skarðshlíð u. Eyjafjöllum.

1878 og 1879  var Jón vinnumaður á [[Gjábakki|Gjábakka]] og Helga á hinu býlinu þar, 1878 með Kristínu með sér, 1879 með Friðrik með sér, en 1879 fór Jóhann léttadrengur að Skarðshlíð u. Eyjafjöllum.

Núverandi breyting frá og með 15. febrúar 2016 kl. 13:37

Helga Helgadóttir húsfreyja í Steinmóðshúsi og víðar fæddist 12. apríl 1836 og lést 29. desember 1914.
Foreldrar hennar voru Helgi Jónsson bóndi og formaður í Kornhól, f. 9. júlí 1806, d. 17. júní 1864 og fyrri kona hans Þuríður Björnsdóttir húsfreyja, f. 1813, d. 16. október 1837.

Helga var hálfsystir, (samfeðra), Jónasar Helgasonar bónda í Nýjabæ, Bjarna Helgasonar vinnumanns og Árna Helgasonar vesturfara.

Helga ólst upp hjá föður sínum og Sigríði Bjarnadóttur stjúpmóður sinni í Kornhól.
Hún giftist Jóni Steinmóðssyni 1856 og bjó í fyrstu hjá tengdamóður sinni, búandi í Fjósi 1865-1868, á Hólnum 1869 með Jóni og Jóhanni, en í Steinmóðshúsi 1870-1873 með Jóhanni og Kristínu og 1874 með sömu áhöfn.
Þau eignuðust fyrsta barn sitt 1856 og misstu það vikugamalt úr ginklofa. Sigríður fæddist 1858 og dó skyndilega þriggja mánaða gömul. Jón fæddist 1859 og dó fjögurra mánaða gamall úr umgangsveiki. Jóhann fæddist 1862. Hann var með þeim í æsku, var um skeið í sveit í Skarðshlíð u. Eyjafjöllum, síðar sjómaður á þilskipinu Jósefínu og fórst með henni 26 ára gamall 1888. Ólafur fæddist 1868 og dó á fyrsta ári sínu úr uppdráttarveiki.
Tvö börn þeirra lifðu til elliár, Kristín húsfreyja, sem fæddist 1873, bjó á Seyðisfirði og Friðrik verkamaður, sem lifði að dvelja á Elliheimilinu í Skálholti.
1875 voru þau Jón í Hólshúsi með Jóhann og Kristínu, og þar var einnig Elín tengdamóðir hennar 84 ára og Elín mágkona hennar með börn sín Friðriku Matthildi og Kristján. Þessi fjölskylda var þar einnig 1876. 1877 voru þau þar með Jóhann og Kristínu, Elínu móður Jóns og Elínu systur hans.
1878 og 1879 var Jón vinnumaður á Gjábakka og Helga á hinu býlinu þar, 1878 með Kristínu með sér, 1879 með Friðrik með sér, en 1879 fór Jóhann léttadrengur að Skarðshlíð u. Eyjafjöllum.
1880 voru þau í vinnumennsku í Vanangri með Friðrik og Kristínu með sér.
1881 voru þau í Vanangri án Kristínar, en hún var þá niðursetningur á Vesturhúsum.
Þau voru í vinnumennsku í Dölum 1882 og Kristín var þar niðursetningur.
Helga var vinnukona í Hólshúsi 1884.
Þau Jón voru komin í Sjóbúð 1886 og Jóhann var hjá þeim, en hann kom undan Eyjafjöllum 1886. Friðrik var niðursetningur í Þorlaugargerði 1887 og 1888 var Kristín vinnukona í Dölum og enn 1892.
Þau voru í Sjóbúð 1886-1895, en barnlaus. Heimili þeirra þá er nefnt Nýborg nr. 2 á manntali 1890.
Jón lést 1896. Helga var vinnukona í Nýjabæ 1901 og var þar 1910, hálfsystir húsbóndans Jónasar Helgasonar.
Hún lést 1914.

Maður Helgu, (5. janúar 1856), var Jón Steinmóðsson, f. 17. nóvember 1834, d. 28. október 1896.
Börn þeirra hér:
1. Ingibjörg Jónsdóttir, f. 22. október 1856, d. 30. október 1856 úr ginklofa.
2. Sigríður Jónsdóttir, f. 4. febrúar 1858, d. 8. maí 1858, „dó snögglega, óvíst af hvaða veiki“.
3. Jón Jónsson, f. 14. febrúar 1859, d. 12. júní 1860 „af umgangsveiki“.
4. Jóhann Jónsson, f. 31. október 1862, fórst með þilskipinu Jósefínu 1888.
5. Ólafur Jónsson, f. 23. júní 1868, d. 6. apríl 1869 „úr uppdráttarsýki“.
6. Kristín Jónsdóttir, f. 29. febrúar 1873, d. 16. júlí 1942, gift Vigfúsi Ólafssyni úr Keflavík. Þau bjuggu á Seyðisfirði.
7. Friðrik Jónsson, f. 15. febrúar 1879, d. 18. nóvember 1958.

Heimildir

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.