Heimaklettur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. september 2005 kl. 14:37 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. september 2005 kl. 14:37 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Heimaklettur séður frá suð-vestri.

Heimaklettur er hæsta fjall Vestmannaeyja, en það stendur á Heimaey og er 283m á hæð yfir sjávarmáli. Kletturinn er móbergsstapi sem varð til við gos undir jökli seint á síðustu ísöld. Hann stendur sæbrattur upp úr sjónum, en efst eru grasi vaxnar brekkur á bólstrabergstoppi þar sem að fé er haft á beit.

Fjallgöngur hafa löngum verið stundaðar í Heimakletti. Oft hefur uppgangan verið erfið og hættuleg vegna brattra hlíða og bergs. En bót varð á því í kringum árið 2000. Þá var smíðaður stigi og settur upp þar sem erfiðasti hjallinn er. Ekki er það þó þrautalaust að komast á topp Heimakletts og þarf óvant fólk helst að vera í fylgd með einhverjum sem kann á aðstæður. Gangan upp á klettinn er mikið gaman og reynir vel á. Útsýnið er fagurt og frábært að sjá bæinn og eyjarnar frá þessum sjónarhóli. Á björtum degi sést vel upp á meginlandið, Eyjafjallajökull og Mýrdalsjökull blasir við og langt út á Suðurlandsundirlendið.

Heimaklettur

Þegar sjávarfjöllin leyfa er hægt að fara bæði framan og bakvið við Heimaklett. Aðstæður þurfa að vera góðar til að fara á bakvið Heimaklett en þá er upplifunin ennþá meiri. Fegurðin og háir klettarnir heilla hvern þann sem sér.

Systraklettar Heimakletts heita Miðklettur og Ystiklettur. Ekki er ráðlagt fólki að fara úr Heimakletti út í næstu kletta en það er þó hægt fyrir heimavana menn. Miðklettur og Ystiklettur eru heldur minni en Heimaklettur en saman mynda þeir órjúfanlega mynd sem hefur fest sig í hugum svo margra Eyjamanna og utanaðkomandi fólks. Í Ystakletti er stunduð lundaveiði á sumrin og er veiðikofi í honum

Örnefni

Dufþekja

Dufþekja í Heimkletti, séð af sjó aftan á Heimaklett

norðan í Heimakletti er mikið fýlapláss og þar var áður mikil hvanna- og rótatekja. Hún er ákaflega flá og brött og var mönnum þar hrapgjarnt. Það var trú manna að 20 manns ættu að farast úr henni áður en yfir lyki eða jafnmargir og í Jökulsá á Sólheimasandi en þær áttu að „kallast á“ um manntapa. Fyrsta dauðsfallið í Dufþekju er sagt vera þegar að þræll Hjörleifs að nafni Dufþakur hrapaði þar niður á flótta undan Ingólfi Arnarsyni.

Í Kleifunum í Heimakletti er svokallaður Papakross. Hann er talinn sanna veru Papa í Vestmannaeyjum fyrir landnám.

Hörgaeyri er sandbanki sunnan í Heimakletti sem stendur út frá Stóru-löngu. Þegar að Gissur hvíti og Hjalti Skeggjason komu með kristna trú til Íslands frá Noregi árið 1000 höfðu þeir með sér efnivið og fyrirmæli frá Ólafi konungi Tryggvasyni um að reisa skyldi kirkju á fyrsta stað sem að þeir „skytu bryggjum á land“, en í Kristnisögu kemur fram að þeir hafi haft viðkomu í Dyrhólaey á leið sinni. Kirkjan var reist á Hörgaeyri, þar sem blót og hörgar voru stundaðar áður. Kirkjan var kölluð Stafkirkjan, og var tileinkuð heilögum Klementi, verndardýrlingi sæfara og sjósóknara.

ok var lutað um hvárum megin vágsins standa skyldi, ok hlauzt fyrir norðan, þar váru áðr blót ok hörgar“.

Heimaklettur

Heimaklettur, hátt þú rís
hrauns með gretta dranga.
Högg þér réttir hrannadís,
hörð og þétt á vanga.
Þú mátt brjóta storma stál
straumum móti gnafinn,
spyrna fótum Atlants-ál,
ölduróti kafinn.
Margra alda rún við rún
ristur gjaldamegin.
Upp í kaldan beitir brún,
bárufaldi þveginn.
Þegar hrína hret á kinn,
hreggið hvín á skalla.
Norðri krýnir konunginn
köldu líni mjalla

[...]

- Sveinbjörn Á Benónýsson

Hákollar eru hæsti tindur Vestmannaeyja, í 283 metra hæð yfir sjávarmáli. Hann er nyrst í Heimakletti, austan Dufþekju. Þar er mikil lundaveiði stunduð. Útsýni af Háukollum er stórkostlegt í góðu skyggni. Eyjafjallajökull, Hekla, Þríhyrningur og hinar blómlegu sveitir Landeyja, Fljótshlíðar og Eyjafjalla blasa við sjónum. Dyrhólaey má sjá í austri og í norðurátt má sjá Langjökul í góðu skyggni. Ingólfsfjall sést vel, og í vestri mótar fyrir Reykjanesfjallgarðinum svo og Eldey við sjóndeildarhring.

Upplýsingin

Árið 2003, í tilefni af 30 ára goslokaafmælinu var byrjað að lýsa upp Heimaklett í skammdeginu með sterkum ljóskösturum. Friðbjörn Valtýsson stóð fyrir þessari uppljómun klettarins, en mörg fyrirtæki og margir einstaklingar komu að verkefninu. Í framhaldi af lýsingunni tók áhugahópur sig saman og fengu meira fjármagn og fleiri ljóskastara, og var þá byrjað að lýsa upp Neðri Kleifar og upp í Hettu.

Heimaklettur séður ofan af Klifinu.



















Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.
  • Gamalt og Nýtt, I. bindi, Einar Sigurðsson ritstjóri; Prentsmiðjan Eyrún, Vestmannaeyjum 1949. ISBN 0-0003-055917
  • Fréttir, 30/04/2004, „Fleiri ljósum beint að Heimakletti í kvöld“. [1]
  • Landakirkja í Vestmannaeyjum, Helgi Bernódusson og Ágúst Karlsson. [2]