Heima

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. febrúar 2006 kl. 00:19 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. febrúar 2006 kl. 00:19 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Smáleiðr.)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Þjóðhátíðarlag
1950 1951 1953

Þjóðhátíðarlagið Heima þekkja ef til vill einhverjir úr sjónvarpsþáttunum Sigla himinfley sem sýndir voru í Ríkissjónvarpinu [1] fyrir nokkrum árum og fjölluðu um mannlífið í Eyjum. Af mörgum er Heima, þeirra Oddgeirs Kristjánssonar og Ása í Bæ, talið eitt af fegurri lögum sem samin hafa verið um Vestmannaeyjar.

Hún rís úr sumarsænum
í silkimjúkum blænum
með fjöll í feldi grænum,
mín fagra Heimaey.
Við lífsins fögnuð fundum
á fyrstu bernskustundum,
er sólin hló á sundum
og sigldu himinfley.
Hér reri hann afi á árabát
og undi sér best á sjó,
en amma hafði á öldunni gát
og aflann úr fjörunni dró.
Er vindur lék í voðum
og vængir lyftu gnoðum,
þeir þutu beint hjá boðum
á blíðvinafund.
Og enn þeir fiskinn fanga
við Flúðir, Svið og Dranga,
þótt stormur strjúki vanga,
það stælir karlmanns lund.
Og allt var skini skartað
og skjól við móðurhjartað,
hér leið mín bernskan bjarta
við bjargfuglaklið.
Er vorið lagði að landi,
var líf í fjörusandi,
þá ríkti unaðsandi
í ætt við bárunið.
Þegar í fjarskann mig báturinn ber
og boðinn úr djúpi rís.
Eyjan mín kæra, ég óska hjá þér
að eigi ég faðmlögin vís.
Þótt löngum beri af leiðum
á lífsins vegi breiðum,
Þá finnst á fornum eiðum
margt falið hjartamein.
En okkar æskufuna
við ættum þó að muna
á meðan öldur una
í ást við fjörustein.
Lag: Oddgeir Kristjánsson
Texti: Ási í Bæ
Tóndæmi: Hlusta á tóndæmi af tónlist.is