Hallberg Björnsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Hallberg Björnsson.

Hallberg Björnsson sjómaður, verkamaður fæddist 17. maí 1940 í Norður-Gerði og lést 25. september 1971.
Foreldrar hans voru Björn Eiríkur Jónsson sjómaður, formaður, bóndi, f. 16. desember 1884, d. 30. apríl 1979, og síðari kona hans Brynheiður Ketilsdóttir húsfreyja, f. 4. ágúst 1907, d. 11. janúar 2005.

Börn Hallberu fyrri konu Björns og hans:
1. Guðbjörg Árný Björnsdóttir, f. 31. desember 1907, d. 18. maí 1921.
2. Indlaug Gróa Valgerður Björnsdóttir húsfreyja, f. 23. febrúar 1910, d. 9. nóvember 1990.
3. Jón Björnsson sjómaður, síðast í Hafnarfirði, f. 18. janúar 1913, d. 6. desember 1999.
4. Guðbjörn Árni Björnsson matsveinn á Selfossi, síðast á Seltjarnarnesi, f. 7. október 1923, d. 5. maí 1982.

Börn Brynheiðar og Björns:
5. Hallberg Björnsson, f. 17. maí 1940, d. 25. september 1971.
6. Arnfríð Heiðar Björnsson, f. 7. júlí 1947, d. 28. apríl 2008.
7. Guðlaugur Grétar Björnsson, f. 1. júní 1950, d. 7. desember 2020.

Hallberg var með foreldrum sínum í æsku.
Hann vann snemma við bú foreldra sinna, varð sjómaður, en vann við Dráttarbraut Vestmannaeyja milli vertíða. Einnig var hann með lítinn fjárstofn, sem hann heyjaði fyrir á sumrin og stundaði einnig nokkra garðyrkju.
Þau Herdís giftu sig. Þau bjuggu við Boðaslóð.

I. Kona Hallbergs var Herdís Jansy Debes Símonarson frá Færeyjum, húsfreyja, f. 13. janúar 1938, d. 11. mars 2006.
Barn þeirra:
1. Kristín Hallbergsdóttir, f. 3. febrúar 1960.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.