Halla Guðmundsdóttir (Presthúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júní 2022 kl. 11:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júní 2022 kl. 11:44 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Halla Guðmundsdóttir.

Halla Guðmundsdóttir frá Presthúsum, húsfreyja fæddist 4. desember 1939 að Sólhlíð 26.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðjónsson frá Oddsstöðum, vélstjóri, verkstjóri, f. 28. janúar 1911, d. 18. desember 1969, og kona hans Jórunn Ingunn Guðjónsdóttir frá Kirkjubæ, húsfreyja, f. 14. febrúar 1910, d. 28. nóvember 1995.

Börn Jórunnar og Guðmundar:
1. Guðrún Guðmundsdóttir, f. 11. mars 1937.
2. Halla Guðmundsdóttir, f. 4. desember 1939, d. 8. ágúst 2020.
3. Andvana drengur, f. 22. desember 1944.
4. Bára Jóney Guðmundsdóttir, f. 6. nóvember 1946.
5. Martea Guðlaug Guðmundsdóttir, f. 3. febrúar 1949.

Halla var með foreldrum sínum í æsku, að Sólhlíð 26, Landagötu 23 og í Presthúsum.
Þau Elías giftu sig 1959, eignuðust 8 börn. Þau bjuggu í Steinholti við Kirkjuveg 9a, Fífilgötu 5, Kirkjubæjarbraut 9, Landagötu 12, Ásavegi 20, Nýjabæjarbraut 8a.
Elías lést 2003.
Halla bjó síðast á Litlalandi við Kirkjuveg 59. Hún lést 2020.

I. Maður Höllu, (6. júní 1959), var Elías Baldvinsson frá Steinholti, bifvélavirki, bifreiðaeftirlitsmaður, slökviliðsstjóri, forstöðumaður, f. 1. júní 1938, d. 16. september 2003.
Börn þeirra:
1. Þórunn Lind Elíasdóttir húsfreyja, sjómaður í Eyjum, f. 13. júní 1957 á Sj. Fyrrum maður hennar Sigurður Einarsson, látinn.
2. Unnur Lilja Elíasdóttir húsfreyja, skrifstofumaður í Búðardal, f. 31. janúar 1959 á Sj. Maður hennar Gunnólfur Lárusson.
3. Kristín Elfa Elíasdóttir húsfreyja, skrifstofumaður í Eyjum, f. 25. júní 1960 að Presthúsum. Maður hennar Sigurjón Hinrik Adolfsson.
4. Guðmundur Elíasson verkfræðingur í Mosfellsbæ, f. 13. mars 1962 í Presthúsum. Barnsmóðir hans Magnea Richardsdóttir. Fyrrum kona hans Sæunn Erna Sævarsdóttir. Kona hans Hólmfríður Ólafsdóttir.
5. Sigrún Elíasdóttir húsfreyja, markaðsfulltrúi í Reykjavík, f. 1. mars 1964. Maður hennar Logi Friðriksson.
6. Eygló Elíasdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 20. júlí 1968. Maður hennar Viðar Sigurjónsson.
7. Elísa Elíasdóttir húsfreyja, bókavörður í Eyjum, f. 3. ágúst 1971. Maður hennar Magnús Benónýsson.
8. Baldvin Elíasson deildarstjóri, f. 1. febrúar 1977. Kona hans Íris Davíðsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.