Hafsteinn Snorrason (Hlíðarenda)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóhann Hafsteinn Snorrason frá Hlíðarenda, verkstjóri fæddist 22. febrúar 1911 og lést 10. nóvember 1960.
Foreldrar hans voru Snorri Tómasson útgerðarmaður, skósmíðameistari, f. 11. október 1867 á Arnarhóli í V.-Landeyjum, d. 28. nóvember 1936, og kona hans Ólafía Ólafsdóttir frá Brekkkum í Mýrdal, húsfreyja, f. þar 15. ágúst 1871, d. 27. desember 1952.

Börn Ólafíu og Snorra:
1. Ágústa Þuríður Snorradóttir, tvíburi, verkakona, f. 20. ágúst 1900 í Sjóbúð, d. 31. desember 1983.
2. Andvana meybarn, tvíburi, f. 20. ágúst 1900.
3. Júlíus Sölvi Snorrason útgerðarmaður, vélstjóri, f. 26. júlí 1903, d. 8. febrúar 1993.
4. Tómas Bergur Snorrason bakarameistari, f. 28. apríl 1907, d. 28. júlí 1970.
5. Ólafía Ósk Snorradóttir skrifstofukona, gjaldkeri, f. 28. nóvember 1908, d. 13. september 2005.
6. Jóhann Hafsteinn Snorrason verkstjóri, f. 22. febrúar 1911, d. 10. nóvember 1960.
7. Theodóra Margrét Snorradóttir húsfreyja, f. 12. júní 1913, d. 22. mars 1943 á Vífilsstöðum.

Hafsteinn var með foreldrum sínum.
Hann varð verkstjóri, við fiskútflutning til Bretlands á stríðsárunum, síðan verkstjóri í Vinnslustöðinni.
Hafsteinn stundaði mikið íþróttir á æskuárum sínum, varð Íslandsmeistari í spretthlaupum.
Þau Ásta giftu sig 1952, eignuðust eitt barn. Þau bjuggu á Hlíðarenda, á Minna-Núpi við Brekastíg 4 og í Víðidal við Vestmannabraut 33.
Ásta lést 1956 og Hafsteinn 1960.

I. Kona Hafsteins, (26. desember 1952), var Ásta Björnsdóttir frá Sólheimum við Njarðarstíg 15, húsfreyja, f. 12. júlí 1927, d. 13. desember 1956.
Barn þeirra:
1. Snorri Ólafur Hafsteinsson rafvirkjameistari í Kópavogi, f. 13. ágúst 1953. Kona hans Jónína Ragnheiður Ketilsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.